Daði spreytir sig í Gettu betur Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. september 2026 15:03 Gettu betur viðureignin fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð klukkan fjögur. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, er meðal þeirra sem spreyta sig gegn sigurliði MH í Gettu betur 2025. Vísir/VIlhelm Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð.
Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966 og verður sextíu ára afmæli skólans fagnað rækilega í allan dag. „Við verðum til dæmis með hamraskáldaupplestur. Það verða sem sagt rithöfundar sem hafa verið í MH með upplestur í Norðurkjallara. Svo er það klassíkin okkar, eða klassískir tónleikar á Miklagarði,“ segir Brynhildur Björnsdóttir, viðburðastjóri, en klassíska hljómsveitin á tónleikunum samanstendur að sjálfsögðu af MH-ingum. „Svo verður vegleg leiklistardagskrá og henni lýkur með því að leikhópurinn úr Rocky Horror sýningunni fyrir 35 árum kemur saman.“ Kempurnar stressaðar Klukkan fjögur verður efnt til óhefðbundinnar Gettu betur viðureignar þar sem lið eldri nemenda mun etja kappi við sigurlið skólans árið 2025. Liðið skipa fyrrverandi nemendurnir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, sem skoruðu á lið nemenda. Brynhildur viðurkennir að liðsmenn hafi verið hvattir til þess. „Þetta verður kröftug keppni og hugmyndin er bara að sýna hvað MH-ingar koma víða við þó að það séu vissulega listamennirnir sem að kannski svona fólk tengir mest við MH, að þá eru auðvitað MH-ingar að gera garðinn frægan víða í þjóðfélaginu og ég veit að áskorendaliðið er mjög, mjög stressað,“ segir Brynhildur glettin. Páll Óskar Hjálmtýsson er meðal þeirra sem koma fram á tónleikum í MH kvöld. Þar verða einnig Benni HemmHemm, Snorri Helgason, Ragnheiður Gröndal, Unnsteinn Manuel Baggalútur og fleiri.Vísir/Vilhelm Þá verða pallborðsumræður um áhrif skólans á listalíf í landinu en þaðan útskrifuðust margir af þekktustu listamönnum landsins, líkt og til dæmis Páll Óskar sem treður upp í kvöld. Brynhildur segir tengsl listarinnar og skólans í gegnum sterkt kóra- og leiklistarstarf órjúfanleg. „Skólinn fékk bara á sig í byrjun einhvers konar stimpil um að frjáls hugsun væri velkomin og ég held að það hafi bara hafi bara skilað sér. Og nú er þetta bara orðið svolítið þannig að það hvílir á gömlum merg.“
Skóla- og menntamál Menning Mest lesið Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík Sjá meira