Innlent

Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka

Lovísa Arnardóttir skrifar
Farþeginn var á leið til Hollands með Icelandair. 
Farþeginn var á leið til Hollands með Icelandair.  Vísir/Vilhelm

Farþegi olli skemmdum á innréttingu í flugvél Icelandair í flugi þeirra frá Keflavík til Amsterdam í gær. Greint er frá þessu á vef RÚV. Þar kemur fram að við komu til Amsterdam hafi lögregla tekið á móti farþeganum og handtekið hann.

Haft er eftir Ásdísi Ýr Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, í frétt RÚV að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögregluna. Hún vildi ekki veita frekari upplýsingar um tjón á vélinni. 

Tafir urðu á heimferð vélarinnar vegna málsins. Samkvæmt frétt RÚV er málið til rannsóknar hjá lögreglunni í Hollandi.

Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×