Staðfesta ákvörðun um bann við fullyrðingum um bestu pakkaferðirnar Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 15:07 Ingólfur Abraham Shahin á meirihluta í Travelshift. Guide to Iceland Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur nú staðfest hluta ákvörðunar Neytendastofu gagnvart Travelshift, rekstraraðila Guide to Europe, frá árinu 2024 vegna fullyrðinga og upplýsinga í samningi um pakkaferðir og verðframsetningar á vefsíðunni guidetoeurope.is.
Travelshift þarf að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 600 þúsund krónur og er sektin lækkuð um 100 þúsund krónur í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar. Fjallað var um ákvörðun Neytendastofu við lok árs 2024. Í tilkynningu á vef Neytendastofu segir að í ákvörðunni hafi Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að félagið hafi viðhaft villandi viðskiptahætti og ekki uppfyllt skilyrði um að pakkaferðasamningur skuli vera skýr og á skiljanlegu og greinargóðu máli. Neytendastofa bannaði Travelshift því að birta fullyrðingarnar og beindi fyrirmælum til félagsins um að skýra samninga sína. Ákvörðun staðfesta að hluta Í tilkynningu segir að áfrýjunarnefnd neytendamála hafi nú staðfest þann hluta ákvörðunarinnar sem bannar birtingu fullyrðinga um að Travelshift bjóði mesta úrvalið, bestu ferðir og ódýrustu, lægstu og bestu verðin auk þess sem staðfestur var sá hluti ákvörðunarinnar sem snýr að framsetningu fyrirtækisins á „verð frá“. Áfrýjunarnefndin felldi hins vegar úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem snýr að skilmálum pakkaferða Travelshift. Taldi nefndin skorta á rökstuðning fyrir ákvörðuninni og að ekki væri gerð nægilega grein fyrir því hvaða tilteknu atriði félagsins uppfylltu ekki þann almenna áskilnað að vera skýr og á skiljanlegu og greinargóðu máli.
Neytendur Ferðaþjónusta Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira