Viðskipti innlent

Tekur ekki undir full­yrðingar um plat

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um hækkun stýrivaxta að einhverju leyti viðbúin en hún sé mikil vonbrigði. Hann segir eðlilegt að fólk sé pirrað vegna málsins en hafnar fullyrðingum verkalýðsleiðtoga um að ríkisstjórnin plati almenning með fullyrðingum um vaxtalækkanir.

„Hún var að einhverju leyti viðbúin. Það er auðvitað hlutverk Seðlabankans að gæta að verðstöðugleika. Hún er mikil vonbrigði en við höfum auðvitað séð þennan verðbólguþrýsting sem liggur til grundvallar ákvörðuninni og það eru auðvitað langtímahagsmunir okkar allra að verðbólga lækki,“ segir Daði Már í samtali við fréttastofu.

Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta. Daði segir ríkisstjórnina hlusta á ákall Seðlabankans um að ríkið sýni aðhald og segir að það muni sjást í komandi fjármálaáætlun.

Ekki að plata

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins fór mikinn í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra plata þegar hún hafi fullyrt að vextir væru að lækka, þar sem vaxtalækkanir hefðu aldrei skilað sér til neytenda, viðskiptabankar hefðu þvert á móti hækkað vexti um eitt prósent frá stöðugleikasamningum 2024.

„Það er auðvitað eðlilegt að fólk sé pirrað yfir þessari þróun. Við viljum auðvitað öll að verðbólgan lækki,“ segir Daði þegar ummæli Vilhjálms eru borin undir hann.

„Ég vil samt benda á að það hefur verið algjörlega skýrt markmið þessarar ríkisstjórnar að beita ríkisfjármálunum til þess að stuðla að því að Seðlabankinn nái tökum á verðbólgunni og þess vegna tek ég náttúrulega alls ekki undir það að það hafi neitt verið platað. Þvert á móti, þá hefur stefnan verið alveg skýr og við höfum haldið okkur við hana.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×