Viðskipti innlent

Bein út­sending: Lokakeppni Gulleggsins 2026

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þetta fólk skipar þau tíu teymi sem voru valin til þátttöku í Lokakeppni Gulleggsins 2026. Einnig eru á myndinni starfsmenn KLAK en þau halda úti keppninni.
Þetta fólk skipar þau tíu teymi sem voru valin til þátttöku í Lokakeppni Gulleggsins 2026. Einnig eru á myndinni starfsmenn KLAK en þau halda úti keppninni. Aðsend

Lokakeppni Gulleggsins 2026 fer fram í Hátíðarsal Grósku í dag. Tíu metnaðarfull teymi kynna nýsköpunarhugmyndir sem eiga það sameiginlegt að leita lausna á áskorunum framtíðarinnar. Keppnin er í beinni útsendingu á Vísi.

Steiney Skúladóttir leiðir viðburðinn og er keppnin opin öllum sem hafa áhyga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi. 

Liðin tíu voru valin í kjölfar Masterclass Gulleggsins sem haldin var nýverið. Þar miðluðu sérfræðingar og frumkvöðlar sinni þekkingu til þátttakenda og í kjölfar var opnað fyrir umsóknir. 

Keppnin hefst 15:30 og stendur til klukkan sex.

  • Þeim tíu teymum sem keppa um Gulleggið 2026 er lýst á eftirfarandi hátt í tilkynningu Gulleggsins:
  • Affineva: Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.
  • Araxni: Líftækniframleitt köngulóarsilki fyrir sjávarútveg, textíl og fleira. Vefjum nýja framtíð - úr silki ekki plasti.
  • Dýragáttin: Dýragáttin er eins og Heilsuvera fyrir dýr. Þar er hægt að finna allar upplýsingar um bólusetningar, örmerkingar, dýralæknaheimsóknir og annað sem tengist dýrunum okkar.
  • E-Lísa: E-Lísa dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum.
  • IORDEN: Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að vera með allt IORDEN.
  • Le Bát: Afhendum sjávargögn á sjálfbæran máta
  • Norrstone: Stafrænt vistkerfi fyrir vottun, tryggð viðskiptavina, tryggingar og endursölu skartgripa.
  • Ókind: Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.
  • Replay! The Musical: Söngleikja-og „hryntölvuleikur“ þar sem þú, leikmaðurinn, ferð með aðalhlutverkið.
  • STRUX: Markmið STRUX er að einfalda og hraða ferli byggingarleyfa.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×