Viðskipti innlent

Kristín í Komið gott fær sér dag­vinnu

Atli Ísleifsson skrifar
Kristín Gunnarsdóttir. 
Kristín Gunnarsdóttir.  Landsbankinn

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði samskipta og menningar hjá Landsbankanum sem tekur til starfa í lok febrúar.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að undir deildina falli samskiptateymi og greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.

„Markmið nýrrar deildar er að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans, bæði inn á við og út á við. Upplýsingamiðlun mun bera ábyrgð á samskiptum, almannatengslum, miðlun greininga og ytri fræðslu og styðja þannig við samræmda og skýra rödd Landsbankans í samfélagsumræðu. Á sviði Samskipta og menningar eru fyrir mannauðsmál, markaðsmál og rekstur fasteigna bankans.

Kristín hefur víðtæka reynslu af samskiptum á breiðum grunni. Hún hefur starfað á mörkum fyrirtækja og fjölmiðla og unnið náið með stjórnendum að mótun orðræðu og stefnumiðaðra samskipta. Undanfarin ár var hún markaðs- og samskiptastjóri hjá EFLU þar sem hún bar ábyrgð á innri og ytri samskiptum, leiddi teymi og sinnti stefnumótun, fjölmiðlasamskiptum og ritstjórnarlegri ábyrgð á ársskýrslu. Kristín hefur jafnframt starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta, ímyndarmála og opinberrar umræðu, auk þess að vera meðstjórnandi hlaðvarpsinsKomið gottog álitsgjafi í fjölmiðlum.

Kristín er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín og stundar nú nám til MA-gráðu í Digital Innovation and Strategic Leadership við Hyper Island Stokkhólms/Teesside háskólann,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×