Anna Lísa til Aton Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. febrúar 2026 11:14 Anna Lísa Björnsdóttir hefur í lengri tíma verið lykilkona hjá Vinstri hreyfingunni grænu framboði. Baldur Kristjánsson Anna Lísa Björnsdóttir, fyrrverandi samskiptastjóri Vinstri grænna og aðstoðarmaður ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar, hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá strategísku samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aton.
Þar segir að Anna Lísa komi til Aton með víðtæka reynslu úr stjórnmálum, stjórnsýslu, fjölmiðlum og skapandi greinum. Hún hefur meðal annars starfað sem samskiptastjóri og framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem aðstoðarmaður í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og síðast sem samskiptastjóri LIFE Icewater hjá Umhverfis- og orkustofnun. „Anna Lísa kemur til okkar með reynslu úr stjórnsýslu, stjórnmálum, fjölmiðlum og samfélagsverkefnum. Hún er vön að vinna hratt og markvisst í krefjandi málum og er frábær viðbót í öflugan hóp ráðgjafa Aton,“ segir Sif Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Aton. Áður en hún hóf störf í stjórnmálum og stjórnsýslu starfaði Anna Lísa í rúman áratug fyrir BBC á Íslandi sem fixer, auk þess að koma að bókaútgáfu. Anna Lísa er einn af stofnendum styrktarfélaganna Gleym mér ei og Sorgarmiðstöðvarinnar og leiddi þar markvissa uppbyggingu þjónustu í nánu samstarfi við hagaðila. Hún lærði kvikmyndaframleiðslu í Bretlandi og stundar nú MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. „Aton vinnur að fjölbreyttum verkefnum sem skipta bæði viðskiptavini og samfélagið máli og ég hlakka til þess að nýta styrkleika mína í samskiptum, greiningu og miðlun í þeirra þágu,“ segir Anna Lísa í tilkynningunni.
Auglýsinga- og markaðsmál Vistaskipti Vinstri græn Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira