Viðskipti innlent

Lucky records gjald­þrota en verslunin lifir

Árni Sæberg skrifar
Lucky records er til húsa að Rauðarárstíg í Reykjavík.
Lucky records er til húsa að Rauðarárstíg í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Lucky records ehf., sem rak um árabil samnefnda plötuverslun við Rauðarárstíg, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Verslunin er nú rekin af öðru félagi, Plötur og diskar ehf., sem stofnað var síðasta sumar.

Í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í gær segir að bú félagsins hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 28. janúar síðastliðinn. Frestdagur skiptanna sé 24. október síðastliðinn og skiptafundur hafi verið boðaður þann 22. apríl næstkomandi.

Skorað er á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá fyrri birtingu innköllunarinnar í gær.

Blaðamaður hringdi í verslun Lucky records og var svarað nánast samstundis og sagt að verslunin væri opin. Ingvar Geirsson, stofnandi Lucky records og eigandi Lucky records ehf., segir í stuttu samtali við Vísi að versluninni hafi ekki verið lokað. Að öðru leyti óskaði hann eftir skriflegum spurningum, þar sem hann sé í fríi í Keníu um þessar mundir.

„Staðan er þessi að það hefur annar rekstraraðili tekið við vörumerkinu sem heitir Plötur og diskar og sá rekstraraðili ætlar að halda vörumerki Lucky records enn þá á lífi og viðskiptavinir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að koma að lokuðum dyrum,“ segir hann í svari við fyrirspurn Vísis.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá er félagið Plötur og diskar í eigu Ingimars Arnar Gylfasonar og var stofnað síðasta sumar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×