Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Bjarki Sigurðsson skrifar 28. janúar 2026 21:12 Unnur Þorsteinsdóttir er meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/Bjarni Fjörutíu og fimm manns var sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag. Starfsmenn sem unnið höfðu hjá fyrirtækinu í tugi ára voru meðal þeirra sem misstu vinnuna. Framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu segir daginn hafa verið erfiðan. „
Þetta er búið að vera gríðarlega erfiður dagur. Það er mjög erfitt að sjá á eftir því öfluga starfsfólki sem fékk tilkynningu um uppsögn í dag. Ástæðan fyrir þessari breytingu er að móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen, er búið að vera að endurskipuleggja og gera áherslubreytingar á rannsóknarsviði sínu á heimsvísu. Þetta hefur áhrif á mjög margar starfsstöðvar Amgen víða um heim, þar á meðal á Íslandi,“ segir Unnur Þorsteinsdóttir, meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Verkefni á borð við Íslendingabók halda sínum dampi en breytingar verða á áherslum fyrirtækisins. „Það verður breyting á rannsóknarfókusnum, það er ekki alveg búið að ákveða hvar, en það á eftir að slípa þetta svolítið til,“ segir Unnur. , Ekki verið að slíta fyrirtækið í sundur Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar, hætti sem forstjóri í maí í fyrra. Í viðtali um starfslokin sagðist hann hafa áhyggjur af því að Amgen myndi gleypa fyrirtækið og spýta því út. Unnur segir þetta ekki lið í því. „Við erum við stjórnina hér,“ segir Unnur. Svövu Sigrúnu Sigurðardóttur var sagt upp eftir 29 ára starf hjá fyrirtækinu og náði fréttastofa stuttu tali af henni fyrir utan höfuðstöðvarnar rétt eftir hádegi í dag. Hún segir þetta erfiðan dag. Kom þetta flatt upp á þig? „Ekki þegar það er verið að segja upp, þá eru bara allir undir. Það er bara þannig,“ segir Svava Sigrún Sigurðardóttir. Hvernig var andinn inni eftir að þetta var tilkynnt? „Bara eins og við er að búast,“ segir Svava.
Íslensk erfðagreining Vinnumarkaður Reykjavík Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira