Vesturbæingar sólgnir í ís en Hafnfirðingar fara oftast í bíó Agnar Már Másson skrifar 30. desember 2025 12:08 Tryggvi Björn Davíðsson er framkvæmdastjóri indó. Félagið hefur gefið út „Árið mitt“ þar sem hver viðskiptavinur getur rýnt í neysluvenjur sínar. Vesturbæingar kaupa hlutfallslega oftast ís af öllum á meðan Hafnfirðingar fara oftast í bíó, samkvæmt samantekt sparisjóðsins Indó á neysluvenjum notenda.
Indó gaf í gær út Árið mitt (í anda Spotify Wrapped) í nýrri uppfærslu af appi sparisjóðsins. Þar geta viðskiptavinir Indós séð í hvað launin þeirra fóru á árinu auk þess sem dregnar eru fram ýmsar staðreyndir um neysluvenjur þeirra. Í tilkynningu frá sparisjóðnum kemur fram að viðskiptavinir geti séð er hversu oft þeir hafi farið í ísbúð, notað strætó eða borðað á veitingastöðum á árinu. Ein vinsælasta samantektin hafi þó reynst yfirlit yfir hversu miklu var eytt í mat að meðaltali á mánuði. Þegar hafa rúmlega 20.000 viðskiptavinir Indós nú þegar skoðað samantektina, samkvæmt tilkynningu frá Indó. Haft er eftir Tryggva Birni Davíðssyni, framkvæmdastjóra Indós, að Vesturbæingar hafi, samkvæmt samantektinni, fengið sér hlutfallslega oftast ís af öllum viðskiptavinum, á meðan Hafnfirðingar fóru oftast í bíó. Í samantektinni er einnig dregið hversu mikla vexti viðskiptavinir fengu greidda og hversu mikið þeir spöruðu á því að sleppa að borga gengisálag og færslugjöld á árinu með því að nota Indó í stað hefðbundinna banka. Enn fremur er haft eftir framkvæmdastjóranum að viðskiptavinir bankans hafi sparað rúmlega 1,3 milljarða króna af svokölluðum „bullgjöldum“ á árinu 2025, þar af 920 milljónir í gengisálagi og 392 milljónir í færslugjöldum. „Þetta er rúmlega 40% aukning frá því í fyrra, enda telja nú viðskiptavinir Indós nær 100.000 manns,” er haft eftir Tryggva í niðurlagi tilkynningarinnar.
Fjármálafyrirtæki Áramót Neytendur Fréttir ársins 2025 Reykjavík Hafnarfjörður Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira