Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2025 10:15 Nýopinberaðar síður úr dagbók Epsteins og önnur skjöl innihalda upplýsignar sem gefa til kynna að Epstein hafi verið í samskiptum við ýmsa auðuga og áhrifamikla menn og að Elon Musk hafi verið þeirra á meðal en Epstein gaf til kynna að Musk ætlaði að heimsækja einkaeyju hans. EPA og Getty Demókratar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings birtu í gær ný skjöl sem nefndin fékk nýverið frá dánarbúi barnaníðingsins látna, Jeffreys Epstein. Ýmis nöfn koma fram í skjölunum, sem eru meðal annars úr dagbók Epsteins, en þeirra á meðal eru Elon Musk, Peter Thiel, Steve Bannon og Andrés Bretaprins.
Skjölin gefa til kynna að Musk hafi mögulega ætlað að heimsækja einkaeyju Epsteins í desember 2013. Þar má einnig sjá að Epstein ætlaði að halda morgunverðarfund með Steve Bannon, sem var náinn bandamaður Donalds Trump, forseta, í febrúar 2019 og hádegisverð með Peter Thiel, auðjöfri sem er einnig bandamaður Trumps í nóvember 2017. Farþegaskrá frá árinu 2000 sýnir einnig að Andrés Bretaprins ferðaðist til eyju Epsteins en gott samband þeirra hefur lengi verið ljóst. Epstein svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Hann var 66 ára gamall og hafði þá verið ákærður fyrir mansal og sakaður um að misnota stúlkur kynferðislega og jafnvel útvega áhrifamiklum vinum sínum eins og Andrési prins stúlkur til að misnota. Sjá einnig: Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Musk hefur lengi kallað eftir því að Trump opinberi „Epstein skjölin“ svokölluðu og haldið því fram að nafn Trumps væri í þeim. Hann hefur meðal annars gefið í skyn að fólk geti ekki treyst Trump fyrst hann neiti að opinbera skjölin. Musk sagði á X í gær að fregnirnar um mögulega ferð hans til einkaeyju Epsteins væru rangar en sagði ekkert meira en það. Áhugasamir geta séð allar blaðsíðurnar sex hér. Demókratar birtu fjórar þeirra einnig á X og kölluðu í senn eftir því að öll Epstein skjölin yrðu opinberuð. 🚨🚨 NEW DOCUMENTS FROM EPSTEIN'S ESTATE DETAILING HIS DAILY SCHEDULE:They show meetings with Steve Bannon, Peter Thiel, and a potential visit to Epstein’s Island for Elon Musk. Prince Andrew is listed as a passenger on Epstein’s jet.DOJ must release the Epstein files NOW. pic.twitter.com/lZC6qYQpnk— Oversight Dems (@OversightDems) September 26, 2025 Skjölin hafa reynst mikill hausverkur Epstein skjölin hafa verið töluverður hausverkur fyrir Trump og ríkisstjórn hans. Trump og bandamenn hans hafa á undanförnum árum kynnt undir samsæriskenningar um Epstein og dauða hans en málið hefur reynst Trump erfitt eftir að hann varð aftur forseti. Ríkisstjórn hans hefur staðið í vegi þess að frekari gögn úr málinu yrðu opinberuð en fregnir hafa einnig borist af því að Trump hafi verið tilkynnt að nafn hans komi nokkrum sinnum fyrir í rannsóknargögnunum. Hann og aðrir sem starfa nú í ríkisstjórn hans höfðu áður heitið því að opinbera öll gögn rannsóknarinnar. Miklar samsæriskenningar hafa farið á flug tengdar Epstein á undanförnum árum. Þar á meðal hefur því verið haldið fram að yfirvöld í Bandaríkjunum sitji á umfangsmiklum gögnum sem bendli þekkt fólk við misnotkun Epstein. Því hefur einnig verið haldið fram að Epstein hafi verið myrtur í fangelsinu en ekki svipt sig lífi. Meðal samsæriskenninganna sem tengjast Epstein er að hann hafi átt lista yfir áhrifamikla menn í Bandaríkjunum sem hafi misnotað stúlkur með honum og á eyju hans. Það er listi sem meðlimir áðurnefndrar þingnefndar vilja koma höndum yfir. Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta Epsteins og aðstoðarkona, var árið 2021 dæmd í tuttugu ára fangelsi fyrir með því að hafa útvegað Epstein táningsstúlkur til að brjóta á í gegnum árin. Hún hefur afplánað í alríkisfangelsi í Flórída en var nýverið flutt í lágmarksöryggis fangabúðir í Texas. Það var skömmu eftir að hún var heimsótt af Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra. Eftir það var birt afrit af viðtali Blanche við hana þar sem haft er eftir henni að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna og fyrrverandi vinur Epsteins, hafi aldrei hegðað sér ósæmilega og að „Epstein-skjölin“ svokölluðu væru ekki til. Ætla ekki að rannsaka meinta fölsun Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar stefndi dánarbúi Espteins fyrr á árinu og fór fram á að öll gögn sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum yrðu afhent nefndinni. Töluvert magn skjala fékkst afhent og hefur nefndin þegar opinberað hluta þeirra. Þar á meðal er bók sem Epstein fékk þegar hann var fimmtugur. Í henni er umdeilt bréf sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á að hafa skrifað til auðjöfursins, þar sem hann talar um leyndarmál þeirra á milli og sameiginlegt áhugamál. Trump sjálfur þvertekur fyrir að bréfið sé raunverulegt og segir bréfið falsað. James R. Comer, Repúblikaninn sem leiðir Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segist ekki ætla að láta rannsaka hvort undirskriftin sé fölsuð eða ekki. Kash Patel, yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, var einnig spurður af því að nefndarfundi fyrr í haust hvort hann ætlaði ekki að taka málið til rannsóknar, þar sem forseti Bandaríkjanna hefði sakað dánarbú Epsteins um að falsa skjal og undirskrift hans. Það væri alvarlegt. Patel virtist ekki hafa áttað sig á því hve alvarlegt það væri ef bréfið væri falsað en sagðist ætla að skoða málið. Moskowitz: You've seen the picture of the woman's body with the president's signature—he says it's not his. Will you open up an investigation into Epstein estate for putting out a fake document? Patel: On what basis? Moskowitz: They put out a fake signature—a forgery of his… pic.twitter.com/luo78Q2MyB— Acyn (@Acyn) September 17, 2025
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Donald Trump Elon Musk Tengdar fréttir Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Sex bresk góðgerðafélög sem störfuðu með hertogaynjunni af York hafa slitið á tengsl við hana eftir að tölvupóstur var birtur þar sem hún kallaði Jeffrey Epstein „einstakan vin“. Í póstinum virtist hún biðjast velvirðingar á því að hafa gagnrýnt hann opinberlega. 22. september 2025 21:25 Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, rak í dag Peter Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum vegna tengsla hans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Mandelson kallaði Epstein sinn „besta vin“ í alræmdu afmæliskorti til hans. 11. september 2025 11:30 Opinbera bréf Trumps til Epsteins Afrit af bók sem barnaníðingurinn Jeffrey Epstein fékk að gjöf frá vinum sínum þegar hann varð fimmtugur árið 2003 er komið í hendur þingmanna. Bókin inniheldur meðal annars bréf og teikningu frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hefur sagt að bréfið, sem hann skrifaði undir, sé ekki raunverulegt. 8. september 2025 19:29 Vinna að lista yfir vini og samstarfsmenn Epstein Hópur kvenna sem varð fyrir kynferðisofbeldi af hálfu athafnamannsins Jeffrey Epstein vinnur nú að lista yfir vini hans og kunningja, og aðra sem hann umgekkst mikið. 4. september 2025 07:50 Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur stefnt dánarbúi barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Formaður nefndarinnar, James Comer, vill þannig koma höndum yfir „öll skjöl eða gögn“ sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum. 26. ágúst 2025 10:10 Mest lesið Einmana feður snúa vörn í sókn Innlent Læknir sem sagður er kenna öllum öðrum um sviptur leyfi Innlent Réttarhöld yfir Margréti Löf hefjast Innlent Ljóslaust á fjölförnum gatnamótum Innlent Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar mál tengt 764-glæpahópnum Innlent Sífellt yngra fólk að greinast með heilabilun Innlent Umboðsmaður óskar svara um notkun lögreglu á hrákagrímum Innlent Grunaður um að myrða stúlku sem fannst látin í skotti Teslu hans Erlent Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Erlent „Getum ekki setið undir því að menn séu með ögrandi framgöngu af þessu tagi“ Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að myrða stúlku sem fannst látin í skotti Teslu hans Loka síðustu ræðismannsskrifstofu Rússa Stærsti bæjarbruni í landinu frá 1976 Merz í vandræðum með ungliðana 100 ára yfirráðum Jafnaðarmanna í Kaupmannahöfn lokið Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Öldungadeild samþykkir líka birtingu Epstein-skjalanna Fulltrúadeild samþykkir að birta Epstein-skjölin Úkraínskir útsendarar Rússa sagðir að baki skemmdarverkunum Hvíta húsið hlutaðist til um rannsókn á Tate-bræðrum Dregur sig í hlé af skömm vegna tengsla við Epstein Mislingafaraldurinn í Bandaríkjunum breiðir úr sér Hægri beygja Mette gæti kostað Jafnaðarmenn Kaupmannahöfn Undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup á allt að 100 Rafale herþotum Öryggisráðið samþykkir tillögu Bandaríkjanna um framtíð Gasa Þekktir vísindamenn lögðu lag sitt við Epstein Rússar sagðir hafa drepið ekkju fyrsta fórnarlambs Tsjernobylslyssins Forsætisráðherrann fyrrverandi dæmdur til dauða Telja að lestarteinar hafi verið sprengdir viljandi í Póllandi Enn og aftur tilkynnt um dróna í Danaveldi Játuðu morð á almennum borgurum en voru aldrei sóttir til saka Kallar nú sjálfur eftir birtingu Epstein-skjalanna Loftslagskvíði geti ýtt undir fíkniefnaneyslu Kókaínkóngur handtekinn á Spáni Sonur Beckham sviptur ökuréttindum Kynna umfangsmiklar breytingar á stuðningi við hælisleitendur Bílstjóri strætisvagnsins laus úr haldi Um hundrað slösuðust og tuttugu voru handtekin á mótmælum í Mexíkó Segist hafa fengið fjölda hótana eftir að Trump hætti að styðja hana Ætlar að lögsækja BBC þrátt fyrir afsökunarbeiðni Sjá meira
Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Sex bresk góðgerðafélög sem störfuðu með hertogaynjunni af York hafa slitið á tengsl við hana eftir að tölvupóstur var birtur þar sem hún kallaði Jeffrey Epstein „einstakan vin“. Í póstinum virtist hún biðjast velvirðingar á því að hafa gagnrýnt hann opinberlega. 22. september 2025 21:25
Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, rak í dag Peter Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum vegna tengsla hans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Mandelson kallaði Epstein sinn „besta vin“ í alræmdu afmæliskorti til hans. 11. september 2025 11:30
Opinbera bréf Trumps til Epsteins Afrit af bók sem barnaníðingurinn Jeffrey Epstein fékk að gjöf frá vinum sínum þegar hann varð fimmtugur árið 2003 er komið í hendur þingmanna. Bókin inniheldur meðal annars bréf og teikningu frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hefur sagt að bréfið, sem hann skrifaði undir, sé ekki raunverulegt. 8. september 2025 19:29
Vinna að lista yfir vini og samstarfsmenn Epstein Hópur kvenna sem varð fyrir kynferðisofbeldi af hálfu athafnamannsins Jeffrey Epstein vinnur nú að lista yfir vini hans og kunningja, og aðra sem hann umgekkst mikið. 4. september 2025 07:50
Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur stefnt dánarbúi barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Formaður nefndarinnar, James Comer, vill þannig koma höndum yfir „öll skjöl eða gögn“ sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum. 26. ágúst 2025 10:10