Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. september 2025 09:42 Hjörtur Þór Steindórsson tekur við starfi fjármálastjóra Símans og Sæunn Björk Þorkelsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. aðsend Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til starfa hjá Símanum. Hjörtur Þór Steindórsson tekur við starfi fjármálastjóra fyrirtækisins og þá hefur Sæunn Björk Þorkelsdóttir verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjarskiptafyrirtækinu þar sem segir að Hjörtur Þór taki við starfi fjármálastjóra af Óskari Haukssyni sem hefur ákveðið að láta af störfum um mánaðamótin. Fram kemur í tilkynningunni að Hjörtur hafi starfað hjá Íslandsbanka undanfarin nítján ár, meðal annars sem forstöðumaður á fyrirtækjasviði og sem forstöðumaður á sviði fyrirtækja og fjárfesta. Áður starfaði hann í fimm ár sem lána- og fjárfestingastjóri hjá UPS Capital í Bandaríkjunum. „Hjörtur hefur lokið B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Hartford háskóla í Connecticut og M.A. gráðu í hagfræði frá Trinity College í sama fylki Bandaríkjanna. Þá hefur Hjörtur einnig lokið námi í stjórnun frá Wharton Business School og prófi í verðbréfaviðskiptum,“ segir ennfremur um bakgrunn Hjartar í tilkynningunni. Sæunn Björk tekur við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs af Vésteini Gauta Haukssyni sem einnig hefur ákveðið að láta af störfum, en Vésteinn verður forstjóra áfram til ráðgjafar á næstu mánuðum. Sæunn gegndi áður starfi forstöðumanns innkaupa-, vörustýringar og upplýsingatækni hjá Controlant þar sem hún hóf störf árið 2021. Áður hefur hún gegnt ýmsum stjórnendastöðum hjá Eimskip, síðast sem forstöðumaður innkaupastýringar og kostnaðareftirlits, en þar á undan meðal annars sem deildarstjóri í Hamborg og ferlastjóri félagsins. Þar að auki hefur hún setið í ýmsum stjórnum fyrirtækja. „Sæunn hefur lokið B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í alþjóðastjórnun frá Strathclyde University í Glasgow,“ segir í tilkynningunni. „Samhliða stjórnendabreytingum verða gerðar skipulagsbreytingar á fyrirtækjasviði, en auglýsingamiðlun færist frá sviðinu og heyrir beint undir forstjóra.“ María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, fagnar ráðningu Hjartar og Sæunnar og býður þau velkomin til starfa um leið og hún þakkar þeim Óskari og Vésteini fyrir sín störf.
Fjarskipti Síminn Vistaskipti Mest lesið Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Útilíf og Alparnir sameinast undir merkjum Útilífs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Sjá meira