Opinbera bréf Trumps til Epsteins Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2025 19:29 Donald og Melania Trump, Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell í samkvæmi árið 2000. Getty og Demókratar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Fulltrúa Afrit af bók sem barnaníðingurinn Jeffrey Epstein fékk að gjöf frá vinum sínum þegar hann varð fimmtugur árið 2003 er komið í hendur þingmanna. Bókin inniheldur meðal annars bréf og teikningu frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hefur sagt að bréfið, sem hann skrifaði undir, sé ekki raunverulegt.
Trump og Epstein voru miklir vinir á árum áður en deildu um fasteign í Flórída árið 2004 og mun það hafa leitt til þess að þeir hættu að vera vinir. Sjá einnig: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“ Bókin og önnur gögn hafa verið afhent til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Nefndin stefndi nýverið dánarbúi Epsteins og fór fram á öll gögn sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum. Sjá einnig: Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Það sem nefndin hefur fengið er afmælisbókin, erfðaskrá Epsteins, gamlar skrár yfir tengiliði og símanúmer þeirra og heimilisföng, bankaupplýsingar og mjög svo umdeilt samkomulag sem Epstein gerði við saksóknara í Flórída árið 2007. Alexander Acosta, fyrrverandi saksóknari í Flórída og fyrrverandi ráðherra í fyrri ríkisstjórn Trumps, gerði árið 2007 mjög umdeilt samkomulag við Eppstein árið 2007. Þá játaði Epstein á sig kynferðisbrot og gerði samkomulag við Acosta sem fól í sér að hann sat í fangelsi í þrettán mánuði fyrir að misnota á fjórða tug ungra stúlkna undir lögaldri í New York og Flórída frá árunum 2002 til 2005. Samkomulagið gerði honum kleift að komast hjá alríkisákærum og kom í veg fyrir að hægt væri að ákæra einhverja af samverkamönnum Epsteins. Umdeilt afmælisbréf Í afmælisbókinni er bréfið frá Trump og hafa Demókratar í nefndinni birt mynd af því. Bréfið er í raun sett upp eins og samræður milli Trumps og Epsteins þar sem þeir eru að tala um leyndarmál þeirra á milli og sameiginlegt áhugamál þeirra. Bréfið sem á að vera frá Donald Trump til Jeffreys Epstein þegar sá síðarnefndi varð fimmtugur. Atriðið á að hefjast á því að rödd heyrist segja: „Lífið hlýtur að snúast um meira en að eiga allt.“ „Við eigum ákveðna hluti sameiginlega, Jeffrey,“ segir Trump í bréfinu og fær svarið: „Já, við gerum það, þegar ég hugsa um að.“ Þá segir Trump: „Ráðgátur eldast aldrei, hefur þú tekið eftir því?“ „Já reyndar, það varð mér ljóst síðast þegar ég sá þig,“ svaraði Epstein í atriðinu í myndaða. „Vinur er dásamlegur hlutur. Til hamingju með afmælið og megi hver dagur vera nýtt yndislegt leyndarmál, Donald J. Trump.“ Utan um textann hefur verið teiknuð gróf mynd af líkama konu svo undirskrift Trumps líti út sem skapahár hennar. 🚨🚨HERE IT IS: We got Trump’s birthday note to Jeffrey Epstein that the President said doesn’t exist.Trump talks about a “wonderful secret” the two of them shared. What is he hiding? Release the files! pic.twitter.com/k2Mq8Hu3LY— Oversight Dems (@OversightDems) September 8, 2025 Ýttu undir samsæriskenningar og neituðu svo að birta upplýsingar Epstein svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Hann var 66 ára gamall og hafði þá verið ákærður fyrir mansal og sakaður um að misnota stúlkur kynferðislega og jafnvel útvega áhrifamiklum vinum sínum eins og Andrési prins stúlkur til að misnota. Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta hans og aðstoðarkona, var árið 2021 dæmd í tuttugu ára fangelsi fyrir með því að hafa útvegað Epstein táningsstúlkur til að brjóta á í gegnum árin. Hún hefur afplánað í alríkisfangelsi í Flórída en var nýverið flutt í lágmarksöryggis fangabúðir í Texas. Það var skömmu eftir að hún var heimsótt af Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra. Eftir það var birt afrit af viðtali Blanche við hana þar sem haft er eftir henni að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna og fyrrverandi vinur Epsteins, hafi aldrei hegðað sér ósæmilega og að „Epstein-skjölin“ svokölluðu væru ekki til. Sjá einnig: „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Trump og bandamenn hans hafa á undanförnum árum kynnt undir samsæriskenningar um Epstein og dauða hans en málið hefur reynst Trump erfitt eftir að hann varð aftur forseti. Ríkisstjórn hans hefur staðið í vegi þess að frekari gögn úr málinu yrðu opinberuð en fregnir hafa einnig borist af því að Trump hafi verið tilkynnt að nafn hans komi nokkrum sinnum fyrir í rannsóknargögnunum. Hann og aðrir sem starfa nú í ríkisstjórn hans höfðu áður heitið því að opinbera öll gögn rannsóknarinnar. Miklar samsæriskenningar hafa farið á flug tengdar Epstein á undanförnum árum. Þar á meðal hefur því verið haldið fram að yfirvöld í Bandaríkjunum sitji á umfangsmiklum gögnum sem bendli þekkt fólk við misnotkun Epstein. Því hefur einnig verið haldið fram að Epstein hafi verið myrtur í fangelsinu en ekki svipt sig lífi. Meðal samsæriskenninganna sem tengjast Epstein er að hann hafi átt lista yfir áhrifamikla menn í Bandaríkjunum sem hafi misnotað stúlkur með honum og á eyju hans. Það er listi sem meðlimir áðurnefndrar þingnefndar vilja koma höndum yfir. Hóta lögsóknum Taylor Budowich, sem er aðstoðarstarfsmannastjóri Hvíta hússins, heldur því fram að undirskriftin á bréfinu sé ekki undirskrift Trumps. Þetta sagði hann á X og birti aðrar myndir af nýjum undirskriftum Trumps sem eiga að sanna mál hans. Samhliða myndinum gaf hann til kynna að Trump myndi fara í mál við News Corp vegna meiðyrða. Time for @newscorp to open that checkbook, it’s not his signature. DEFAMATION! https://t.co/O6iKk4SYF5 pic.twitter.com/T0wlp36P9h— Taylor Budowich (@TayFromCA) September 8, 2025 News Corp rekur meðal annars Fox News og Wall Street Journal. Af hverju Trump ætti að fara í mál við fyrirtækið vegna birtingar myndar úr þingnefnd liggur ekki fyrir en Wall Street Journal sagði frá tilvist bréfsins í sumar og það var þá þegar Trump staðhæfði að hann hefði aldrei skrifað bréf til Epsteins. Nú hefur miðillinn birt grein þar sem undirskriftin í bréfinu er borin saman við aðrar undirskriftir Trumps frá þessu tímabili. Sjá einnig: „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Karoline Leavitt, talskona Hvíta hússins, hefur sömuleiðis beint spjótum sínum að Wall Street Journal og heldur því einnig fram að Trump hafi ekki teiknað konuna eða skrifað undir bréfið. Hún segir að lögmenn hans muni höfða mál vegna myndbirtingarinnar. The latest piece published by the Wall Street Journal PROVES this entire “Birthday Card” story is false. As I have said all along, it’s very clear President Trump did not draw this picture, and he did not sign it.President Trump’s legal team will continue to aggressively…— Karoline Leavitt (@PressSec) September 8, 2025 Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Ófremdarástandi lýst: Þrír stjórar í leyfi, einelti og hrun í starfsánægju Innlent Hafa fundið Cessna-vélina Erlent Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Innlent Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Erlent Mildari spá í kortunum Veður Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Innlent Bíða í allt að þrjá tíma: „Ætli það sé ekki bara helvítis veðurspáin“ Innlent Fleiri fréttir Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Bankaerfingi greiðir laun hermanna meðan ríkisstofnanir eru lokaðar Gómuðu aftur manninn sem þeir slepptu fyrir mistök Tveir handteknir vegna Louvre ránsins Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimmtán klukkustundir Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Ýjar að annarri atrennu að forsetaembættinu Vinstrikonan umdeilda vann sannfærandi sigur á Írlandi Fyrrverandi drottning Taílands er látin Segir Trump vilja nýtt „eilífðarstríð“ Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Fundu verksmiðju fyrir ólögleg þyngdarstjórnunarlyf Nota 130 milljón dala gjöf til að greiða hermönnum laun Bandaríkjamenn ræsa út stærsta flugmóðurskip heims Sjá meira