Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. júlí 2025 17:49 Fjölmiðlarisinn Rupert Murdoch og Donald Trump Bandaríkjaforseti. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að skýrslutaka fjölmiðarisans Rupert Murdoch fari fram eins fljótt og hægt er. Trump höfðaði mál gegn Murdoch og fjölmiðilinum Wall Street Journal eftir að dónalegt afmæliskort, undirritað af Trump, til athafnamannsins Jeffrey Epstein var birt.
Lögfræðingar Trumps sækjast eftir því að skýrslutakan fari fram sem fyrst vegna aldurs Murdoch en hann er 94 ára gamall. Murdoch er eigandi fyrirtækisins News Corp sem á, meðal fjölda annarra, miðilinn Wall Street Journal. Einnig kemur fram að Murdoch hafi átt við nokkra heilsukvilla að stríða undanfarið. Málið hófst er miðilinn birti textabrot úr afmæliskorti sem Trump á að hafa skrifað í tilefni fimmtíu ára afmælis Epstein árið 2003. Auk kveðjunnar teiknaði hann mynd af nakinni konu þar sem skapahárin voru undirritun forsetans, Donald. „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál,“ stóð í kortinu. Trump neitar staðfastlega að hafa skrifað kortið og sagði hann einnig að hann kynni ekki að teikna, því hefði hann ekki getað teiknað myndina af nöktu konunni. Samt sem áður gaf hann góðgerðasamtökum myndir sem hann hafði teiknað, til að selja á uppboðum til styrkar þeirra. Hann höfðar því meiðyrðamál gegn Murdoch, News Corp, Wall Street Jounral og fleiri vegna birtingarinnar og krefst hann tíu milljarða dollara, eða rúma 1,2 billjónir íslenskra króna samkvæmt umfjöllun Reuters.
Donald Trump Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Fjölmiðlar Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira