Viðskipti innlent

Salan á Ís­lands­banka: Samið við fjóra er­lenda sölu­aðila

Atli Ísleifsson skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að ganga til samninga við fjóra erlenda aðila til að sinna sölu hlutabréfa í fyrirhuguðu útboði á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Tilkynnt verður um þá innlendu aðila sem sinna munu hlutverki söluaðila í fyrirhuguðu útboði fljótlega.

Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins, en Alþingi samþykkti í gær breytingar á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. Söluaðilarnir sem um ræðir eru Arctic Securities AS, JP Morgan SE, UBS Europe SE og ABN AMRO Bank N.V. (í samstarfi við ODDO BHF SCA).

Fyrirhugað er að sala fari fram með markaðssettu útboði á fyrri helmingi ársins, þar sem einstaklingar hafi forgang.

„Lögin, sem sett voru í fyrra um sölu eftirstandandi hluta ríkisins, tryggja að útboðsferlið fari fram með hlutlægni, hagkvæmni, jafnræði og gagnsæi að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á að ferlið í heild sinni njóti trausts.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsti eftir söluaðilum vegna fyrirhugaðs útboðs þann 30. apríl síðastliðinn og umsóknarfrestur rann út 2. maí. Mikill áhugi var á verkefninu, ekki síst meðal erlendra aðila.

Að undangengnu ofangreindu ferli hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið ákveðið að ganga til samninga við fjóra aðila til að sinna sölu hlutabréfa í fyrirhuguðu útboði. Um er að ræða fjóra erlenda aðila, en tilkynnt verður um þá innlendu aðila sem sinna munu hlutverki söluaðila í fyrirhuguðu útboði fljótlega.

Söluaðilarnir eru Arctic Securities AS, JP Morgan SE, UBS Europe SE, and ABN AMRO Bank N.V. (í samstarfi við ODDO BHF SCA). Líkt og áður hefur verið tilkynnt, var samið við, Barclays Bank Ireland PLC, Citigroup Global Markets Europe AG og Kviku banka hf. um að vera umsjónaraðilar útboðsins og söluaðilar, og annast skipulagningu og yfirumsjón útboðsins, ásamt utanumhaldi tilboðsbóka.

Öll fyrirtækin hafa heimild til að annast útboð fjármálagerninga án sölutryggingar í samræmi við lög um markaði fyrir fjármálagerninga. Söluaðilarnir þurfa að gangast undir fyrirkomulag útboðsins og fá söluþóknun sem nemur 0,75% af verðmæti þeirra hluta sem viðkomandi söluaðili selur,“ segir á vef ráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×