Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Jón Ísak Ragnarsson skrifar 26. apríl 2025 15:21 Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir/Ívar Fannar Formaður félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að bensín- og olíuverð á Íslandi hafi tilhneigingu til þess að fara hratt upp en hægt niður. Heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað um fjögur prósent á síðasta mánuði en meðalverð á Íslandi lækkað um 0,9 prósent á sama tíma.
Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, var til viðtals í Reykjavík síðdegis fyrr í vikunni þar sem hann var spurður að því af hverju bensín- og líuverð hefði ekki lækkað á Íslandi í samræmi við veika stöðu Bandaríkjadollars og lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu. Eiga neytendur inni lækkun á olíu- og bensínverði? „Já þetta er eins og við höfum áður farið yfir, skattar í ríkissjóð eru mjög hátt hlutfall í verði sem neytendur borga fyrir eldsneyti, það er yfir helmingur, en svo er það álagning olíufélaga og svo er það innkaupsverðið.“ Verðið lækkað á Norðurlöndunum Runólfur segir að verð hafi almennt verið að lækka til neytenda á Norðurlöndunum. Svipuð verðþróun hafi átt sér stað hjá Costco á Íslandi, en hin félögin hafi verið seinni til og latari á einhvern hátt. „En við erum að sjá að síðustu þrjátíu daga hefur meðalbensínverð lækkað um 0,9 prósent. Heimsmarkaðurinn hefur lækkað vel yfir 4 prósent að teknu tilliti til gengis Bandaríkjadals.“ Verðlækkunin hjá Costco á Íslandi síðustu þrjátíu daga hafi verið þrjú prósent. Það er meira í takt við heimsmarkaðsverðið? „Já þeir eru svona að fylgja kúrvunni sem við sjáum í nágrannalöndunum okkar.“ Runólfur segir að í gegnum tíðina hafi olíufélögin hér á landi yfirleitt ekki beðið lengi með að hækka verðið þegar hækkun verður á heimsmarkaði. „Já það er því miður þannig. Það hefur meira að segja verið sýnt fram á það með veigamikillirannsókn hjá Samkeppniseftirlitinu, að verðið hefur tilhneigingu til þess að fara hratt upp en hægt niður „Það er eins og einhver lýsti því í ákveðinni fræðibók, það er eins og raketta upp en niður eins og fjöður.“ Útskýringarnar á þessu snúist yfirleitt um birgðarstöðu. „Einhvernveginn virðast menn bæði vera með vond innkaup þegar verð hækkar en líka vond innkaup þegar verð lækkar.“ „Ég ætla ekki að segja það að innkaupastjórarnir hjá olíufélögunum séu ekki starfi sínu vaxnir. Ég held það sé bara skortur á samkeppni, þessi fákeppnismarkaður hann örvar fólk ekki til dáða því miður,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Bensín og olía Skattar og tollar Bílar Reykjavík síðdegis Bylgjan Neytendur Mest lesið Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Viðskipti innlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Atvinnulíf Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Viðskipti erlent Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Viðskipti erlent Að komast aftur í vinnugírinn eftir geggjað páskafrí Atvinnulíf Fleiri fréttir Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Hvar er opið um páskana? Spotify liggur niðri Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Hækka verð á PS5 í Evrópu vegna „krefjandi“ umhverfis Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur Páskaegg allt að fjórðungi dýrari en í fyrra Tvö apótek sögðu pass við verðlagseftirlitið Kannast ekki við hafa tekið lán að nóttu til en þarf að borga Rangt að plástrarnir geti læknað sjúkleika eða röskun á líffærastarfsemi Hatar sjálfsafgreiðslukassa: „Ég er orðinn gamall karl að gefast upp á nútímanum“ Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Gerðu tungumálarassíu hjá reiðhjólaverslunum Svara Melabúðinni: „Verðtökufólki hefur sannarlega verið vísað á dyr“ Þrjú hundruð á biðlista og hækkuð áskriftargjöld Indó ríður aftur á vaðið Óskiljanlegt að ASÍ beini spjótum sínum að lítilli hverfisverslun Meina verðlagseftirlitsmönnum inngöngu Þröng á þingi og þriggja tíma ferð vegna þrjátíu prósenta afsláttar Margir gangi í gildru netsvindlara í óðagoti Sýndarverslanir spretta upp eins og gorkúlur Verð enn lægst í Prís Milljarðar Menntasjóðsins skrítnir þegar stúdentar sligist undan vöxtum Varað við svörtum eldhúsáhöldum IKEA innkallar útiljósaseríur og útiljós Neytendastofa sektar þrjár verslanir vegna nikótínauglýsinga Innkalla baunasúpu rétt í tæka tíð Rukkað því fólk hékk í rennunni Sjá meira