Seðlabankastjórinn Carney verður forsætisráðherra Kanada Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. mars 2025 06:32 Carney og Trudeau eftir að úrslit lágu fyrir í gær. AP/Canadian Press/Sean Kilpatrick Hagfræðingurinn og fyrrum seðlabankastjórinn Mark Carney verður næsti forsætisráðherra Kanada, eftir að hafa verið kjörinn formaður Frjálslynda flokksins. „
Bandaríkin eru ekki Kanada. Og Kanada mun aldrei verða hluti af Bandaríkjunum á neinn hátt,“ sagði Carney þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í gær. Var hann að vísa til hugmynda Donald Trump Bandaríkjaforseta um að Kanada verði 51. ríki Bandaríkjanna. Carney tekur við af Justin Trudeau við fordæmalausar aðstæður, þar sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa lagt 25 prósent toll á vörur frá nágrannaríkinu. Carney sagði í gær að Kanadamenn hefðu ekki beðið um tollastríð en myndu hafa sigur. Trudeau sagðist stoltur af arfleifð sinni en varaði við hættulegum tímum þar sem ekkert væri fast í hendi; hvorki lýðræðið, frelsið né Kanada sem slíkt. Carney og Trudeau eru sagðir munu funda á næstu dögum til að ákveða hvenær síðarnefndi hættir og fyrrnefndi tekur við. Carney verður annar forsætisráðherran í sögu landsins án þingsætis en mun leiða Frjálslynda flokkinn í næstu þingkosningum. Carney var bankastjóri Seðlabanka Kanada frá 2008 til 2013 og bankastjóri Bank of England frá 2013 til 2020.
Kanada Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira