Bauð Djemba-Djemba að þjálfa KFR og vinnu hjá SS Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. nóvember 2019 12:00 Djemba-Djemba ku ekki vera á leið til KFR, né að vinna í Sláturfélaginu. vísir/getty
Ungur stuðningsmaður KFR (Knattspyrnufélags Rangæinga), sem leikur í 4. deild, bauð Eric Djemba-Djemba, fyrrverandi leikmanni Manchester United, að þjálfa liðið. Sömuleiðis bauð hann Kamerúnanum vinnu í Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem KFR sendi Fótbolta.net. Í hlaðvarpi Hjörvars Hafliðasonar, Dr. Football, var fullyrt að KFR ætti í viðræðum við Djemba-Djemba um að taka að sér þjálfun liðsins. Tómas Birgir Magnússon, formaður KFR, þvertók fyrir þetta í samtali við Fótbolta.net í síðustu viku. Og KFR hefur núna sent frá sér yfirlýsingu um málið. „Rétt skal vera rétt. Meistaraflokksráð KFR vann vinnu Dr. Football og komst að því að ungur stuðningsmaður KFR sendi í gríni skilaboð á Djemba-Djemba í gegnum Instagram og bauð honum gull og græna skóga ásamt vinnu í Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli. Þessi annars ágæti stuðningsmaður hefur engin tengsl né formlega stöðu hjá KFR og getur því ekki komið fram fyrir félagið eða verið talsmaður þess á nokkurn hátt. Einnig hefur hann ekki umboð til að ráða í störf hjá Sláturfélagi Suðurlands,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Manchester United keypti Djemba-Djemba frá Nantes sumarið 2003. Hann lék með United í eitt og hálft tímabili en gerði engar rósir hjá félaginu. Síðan þá hefur Djemba-Djemba farið víða. Hann lék m.a. með OB í Danmörku þar sem hann var samherji Rúriks Gíslasonar.
Íslenski boltinn Rangárþing eystra Rangárþing ytra Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira