Rússar og Kínverjar koma í veg fyrir viðskiptaþvinganir gegn Sýrlandi Atli Ísleifsson skrifar 28. febrúar 2017 23:30 Úr sal öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Vísir/Epa
Rússar og Kínverjar beittu í dag neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn ályktun um að koma á viðskiptaþvingunum gegn ákveðnum einstaklingum og fyrirtækjum í Sýrlandi sem grunuð eru um að hafa átt þátt í að beita efnavopnum gegn borgurum í landinu á árunum 2014 og 2015. Bandaríkin, Bretland og Frakkar vildu koma á slíkum viðskiptaþvingunum sem hefðu beinst gegn rúmlega tuttugu mönnum, fyrirtækjum og stofnunum sem eru grunuð um að hafa tekið þátt í efnavopnaárásunum. Ályktunin hefði jafnframt bannað öllum ríkjum að útvega Sýrlandsstjórn þyrlur, þar sem rannsakendur segja slík farartæki hafa verið notuð í umræddum árásum. Þetta er í sjöunda sinn sem Rússlandsstjórn, sem styður við stjórn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta, beitir neitunarvaldi í málinu. Níu af fimmtán aðildarríkjum öryggisráðsins greiddu atkvæði með tillögunni. Auk Rússa og Kínverja greiddu Bólivíumenn atkvæði gegn ályktunni, en Eþíópíumenn, Egyptar og Kasakar sátu hjá. Til að ályktun verði samþykkt þurfa níu af fimmtán ríkjum öryggisráðsins að greiða atkvæði með, auk þess að ekkert fastaríkjanna fimm (Bandaríkin, Kína, Rússland, Bretland og Frakkland) mega beita neitunarvaldi sínu.
Sýrland Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira