Veðurstofan varar við stormi á morgun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. október 2016 00:01 Um venjulega haustlægð er að ræða að sögn vakthafandi veðurfræðings. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan varar við stormi við suður-og vesturströndina og á miðhálendinu á morgun. Að sögn Þorsteins V. Jónssonar vakthafandi veðurfræðings er um venjulega haustlægð að ræða með tilheyrandi rigningu og roki. „Þetta er svona suðaustanátt svolítið hjá okkur núna og það verður vætusamt á sunnanverðu landinu en svo kólnar eftir helgina,“ segir Þorsteinn. Hann segir nokkrar lægðir á sveimi fyrir sunnan landið og að ný lægð gæti komið upp að landinu á föstudag. Aðspurður hvort að leifar af fellibylnum Matthew sem nú gengur yfir eyjarnar í Karabíska hafinu muni koma hingað til lands segir Þorsteinn erfitt að segja til um að spá svo langt fram í tímann. Það komi ekki í ljós fyrr en um miðja næstu viku.Veðurhorfur á landinu næstu daga: Hægt vaxandi suðaustanátt og rigning með köflum, 13-23 metrar á sekúndu á morgun, hvassast við suðvesturströndina og bætir í úrkomu. Heldur hægari norðaustan til og úrkomulítið. Dregur úr vindi vestanlands annað kvöld. Hiti 7 til 16 stig að deginum, hlýjast á norðausturlandi.Á fimmtudag: Suðaustan 10-15 metrar og talsverð rigning sunnan- og vestanlands fyrripart dags, en síðan skúrir. Bjarviðri norðaustan til. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustan til.Á föstudag: Suðaustan 13-18 metrar og dálítil væta syðst, en annars mun hægara og bjart með köflum. Hiti 7 til 12 stig.Á laugardag og sunnudag: Ákveðin suðaustlæg átt og vætusamt á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið fyrir norðan. Áfram milt veður.Á mánudag og þriðjudag: Suðaustlæg átt og skúrir eða dálítil rigning, en þurrt að mestu norðaustan til. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Fleiri fréttir Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Sjá meira