„Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. september 2026 12:26 Fólk mun dansa saman í þjóðbúningum í dag. vísir/aðsend Þjóðbúningarhátíð fer nú fram á Þjóðminjasafninu þar sem vegleg dagskrá skemmtir ungum sem öldnum. Markmiðið með hátíðinni er bæði að fræða og kæta og segir sérfræðingur safnsins og skipuleggjandi hátíðarinnar mikilvægara en nokkru sinni fyrr að fagna þjóðbúningnum.
Hátíðin hefst í dag klukkan tvö þegar að handverksfólk frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands kennir gestum handtökin á meðan lifandi tónlist ómar um sali safnsins. Hátíðin heldur svo áfram á morgun þar sem pomp og prakt mun einkenna fjölskyldudagsrkána. Helga Volertsen, sérfræðingur Þjóðminjasafnsins og skipuleggjandi þjóðbúningahátíðarinnar, hvetur fólk til að skella sér í þjóðbúninginn og leggja leið sína á safnið. „Reyndar verður frítt inn fyrir fólk sem mættir í þjóðbúningi alla helgina hjá okkur, bæði íslenskum og erlendum, þannig að ef fólk á búning upp í skáp er um að gera að dusta rykið af honum og kíkja í Þjóðminjasafnið. Svo koma félagar úr þjóðdansfélaginu líka til að skemmta, dansa, sýna og bjóða fólki að taka þátt. Þannig ða við fáum að hafa svolítið djammstuð í dag, búningadjamm.“ Mikil saga fylgi búningunum. „Þetta er nú líka svolítið skemmtilegt að sjá hvað það var sem fólk klæddist og hvernig það skreytti sig. Ótrúlega flottir búningar, sko sérstaklega þessi brúðarbúningur sem við erum með á sýningu núna. Hann var seldur úr landi sem minjagripur snemma á nítjándu öld, 1809. Það kviknaði í skipinu sem hann var um borð í, menn héldu að hann hafi týnst og glatast. Svo fannst hann aftur fyrir hvað 60 eða 70 árum á Viktoríu Alber safninu í London. Nú erum við með hann í láni frá safninu í London.“ Hún segir það einstaklega mikilvægt að fagna þjóðbúningnum. „Ég held að þetta sé samblanda af okkar sögu og okkar bakgrunni. Það er rosa gott í nútímanum að þekkja sinn bakgrunn til að geta samsamað sig með nútímanum.“
Menning Íslensk flík Þjóðbúningar Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira