Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Eiður Þór Árnason skrifar 6. september 2026 21:40 Þrír af þeim fimm sem eru slasaðir eru sagðir í alvarlegu ástandi. AP/Lynne Sladky Minnst fimm eru látnir eftir flugslys í Flórídaríki í Bandaríkjunum þar sem fraktflugvél á vegum netverslunarinnar Amazon fór út af flugbraut og lenti á bifreiðum utan hennar. Vélin var á leið frá San Juan í Púertó Ríkó til Miami-borgar.
Bandarísk flugmálayfirvöld segja að Boeing 767-þotan hafi farið út af flugbrautinni um klukkan 14 að staðartíma, eða um 18 á íslenskum tíma. Sky News greinir frá þessu. Fimm létust, þrír slösuðust lífshættulega og tveir aðrir voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar áverka, að sögn yfirvalda í Miami-Dade-sýslu. Yfirvöld í Miami sögðu síðdegis í dag að of snemmt væri að segja til um hvort fólkið sem lést hefði verið um borð í flugvélinni eða í ökutækjunum sem flugvélin lenti á. Þetta kemur fram í frétt AP-fréttaveitunnar. Hlé hefur verið gert á umferð um flugvöllinn og sextíu slökkviliðsmenn eru sagðir vera á vettvangi. Um 250 flugferðum hafði verið seinkað síðdegis í dag að staðartíma. Festust inni í stjórnklefanum Eldur kviknaði í vélinni og steig þykkur svartur reykur til himins. Þá festust flugstjóri og aðstoðarflugmaður í stjórnklefanum og nokkrir farþegar í bílum, að sögn Ray Jadallah, slökkviliðsstjóra Miami-Dade. Slökkviliðið sagði að einn einstaklingur hefði festst undir ökutæki. Slökkviliðsmenn voru enn að eiga við eldsneytisleka úr flugvélinni nokkrum klukkustundum eftir slysið. Töluverður vindur var í Miami í gær og hafa líkur verið leiddar af því að sterkur meðvindur kunni að hafa átt þátt í að flugvélin rann út af flugbrautinni.AP/Lynne Sladky Flugvélin nam staðar við vegkant nálægt tveimur flutningabílum. Flugvélin virtist að mestu leyti heil þrátt fyrir eldinn. Enn verið að meta aðstæður Amazon staðfestir í yfirlýsingu að þota Amazon Air sem rekin sé af flugfélaginu 21 Air hafi „lent í atviki við tilraun til lendingar á Miami-alþjóðaflugvellinum í dag.“ Enn væri verið að safna upplýsingum um atburðarásina og unnið náið með yfirvöldum og ráðamönnum til að skilja hvað átti sér stað. „Einmitt núna er öryggi, velferð og umönnun allra þeirra sem hlut eiga að máli forgangsatriði okkar. Við erum að gera allt sem við getum til að styðja við þá sem þetta hafði áhrif á,“ segir í yfirlýsingu Amazon. Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna, sagði á X sem hét áður Twitter að búið væri að gefa út flugbann á alþjóðaflugvellinum á meðan viðbragðsaðilar meta aðstæður. „Ef þú ert að ferðast um svæðið, vinsamlegast reiknaðu með verulegum seinkunum og mögulegum afbókunum.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Flug Amazon Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira