Vara vegfarendur við vatnavöxtum Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2015 16:51 Vísir/Vilhelm
Enn fer vindstyrkur hækkandi og verður hann í hámarki á milli sex og tíu í kvöld. Á fjallvegum er mjög hvasst og sviptivindar á láglendi geta orðið allt að 35 til 45 m/s á Snæfellsnesi, á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Þá er hlýtt og mikil úrkoma víða og hláka um landið allt. Því er hætta á vatnavöxtum. Hér að neðan má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar um færð á vegum á landinu. Vegir á Suður- og Vesturlandi eru að mestu greiðfærir þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti í uppsveitum Suðurlands. Óveður er á norðanverðu Snæfellsnesi, Bröttubrekku og á Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum eru vegir að verða auðir en krap er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum þar sem einnig er óveður. Óveður er einnig á Súðavíkurhlíð, Ennishálsi og á Mikladal og Hálfdán en þar er líka krapi á vegi. Vegir eru víða greiðfærir á Norðurlandi en þó er eitthvað um hálkubletti. Óveður á Siglufjarðarvegi, Öxnadalsheiði, á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Hófaskarði og á Sandvíkurheiði. Á Austurlandi er víða orðið greiðfært en þó eru enn hálkublettir á stöku stað. Greiðfært er einnig að mestu með suðausturströndinni en óveður er á Hvalnesi. Undanfarna daga hefur hópur af hreindýrum verið við veg á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát.
Veður Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Fleiri fréttir Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Lögreglan leitar að Heklu Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Sjá meira