Real Madrid vann eyðimerkur-einvígið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2014 16:41 Jesé skoraði sigurmark Real Madrid. Mynd/NordicPhotos/Getty
Stórliðin Real Madrid frá Spáni og Paris Saint-Germain frá Frakklandi mættust í dag í æfingaleik í Katar en bæði liðin voru í æfingabúðum við Persaflóann um áramótin. Real Madrid vann leikinn 1-0 og kom markið í fyrri hálfleik. Það er búist við miklu af báðum liðunum í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu á nýju ári en Real og PSG unnu bæði sannfærandi sigra í sínum riðlum og röðuðu inn mörkum í leikjum sínum. Jesé skoraði eina mark leiksins strax á 18. mínútu eftir sendingu frá Álvaro Morata. Jesé byrjaði í sóknarlínunni ásamt þeim Morata, Cristiano Ronaldo og José Rodríguez en þeir Xabi Alonso og Asier Illarramendi voru síðan saman á miðjunni.JoséRodríguezog KaremBenzema áttu báðir stangarskot í leiknum en heilt yfir fékk franska liðið fleiri færi í leiknum. Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, skipti öllum ellefu byrjunarliðsmönnum sínum útaf í hálfleik en Laurent Blanc, þjálfari PSG, leyfði Edinson Cavani að spila í rúman klukkutíma og tók Zlatan Ibrahimović ekki af velli fyrr en á 73. mínútu. Þetta er samt þriðji leikurinn á stuttum tíma þar sem Cristiano Ronaldo hefur betur á móti Zlatan Ibrahimović en þeir mættust eins og frægt var í umspilinu um laust sæti á HM í Brasilíu. PSG mætir Brest í franska bikarnum á sunnudaginn en Real Madrid spilar við Celta Vigo á mánudaginn kemur í spænsku deildinni.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira