Gróðureldar

Fréttamynd

Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fal­legt, fjallið er allt brunnið“

Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Komst undan á­samt fjöl­skyldunni

„Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“

Innlent
Fréttamynd

Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið

Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Fórnuðu gúmmí­stíg­vélunum við að slökkva sinueld á Ströndum

Sinueldur kviknaði á friðlandi á Ströndum í gær en hann hefur verið tilkynntur til lögreglu. Eldurinn kviknaði á friðlandi Dranga, sem var friðlýst árið 2021, en þeir sem slökktu eldinn segja mögulegt að hann hafi kviknað út frá sígarettu. Útlit sé fyrir að hann hafi fyrst kviknað við vörðu sem markar leiðina yfir Drangaháls.

Innlent
Fréttamynd

Loftgæðin hættu­leg leik­mönnum

Reykmökkur frá skógareldum í Kanada lagðist yfir New York og New Jersey svæðið í Bandaríkjunum, þar sem úrslitaleikur HM milli Argentínu og Spánar fer fram um helgina. Loftgæðin eru sögð hættuleg en spænska landsliðið æfði utandyra í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Gróðureldar loga stjórn­laust og fólki ráð­lagt að halda sig innan­dyra

Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði.

Erlent
Fréttamynd

Miklir skógar­eldar nærri París

Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. 

Erlent
Fréttamynd

Tólf látnir í skógareldum í suður­hluta Spánar

Tólf hafa látist í gróðureldum í Almería í suðurhluta Spánar og sex eru slasaðir. Um 150 slökkviliðsmenn hafa unnið að því að ráða að niðurlögum eldsins, sem er talinn hafa kviknað þegar raflínur féllu til jarðar.

Erlent
Fréttamynd

„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“

Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar.

Innlent
Fréttamynd

„Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“

Sviðsstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir öll meðferð elds úti í náttúrunni varasama á þessum árstíma. Gróðureldar sem kvikni séu að megninu til slys en slökkviliðið er með aukið viðbragð vegna gróðurelda.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur í Grafar­vogi

Verið er að vinna að því að slökkva sinueld sem upp kom rétt í þessu í Grafarvogi. Einungis einn dælubíll var sendur á staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Aukin hætta á gróðureldum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga vegna langvarandi þurrka. 

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur við Vík í Mýr­dal

Slökkvilið reynir nú að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði skammt undan Vík í Mýdal, nánar tiltekið í vesturbrekkum Háfells.

Innlent
Fréttamynd

Skárri staða í Ála­sundi

Betur fór en á horfðist í Álasundi í Noregi þar sem mikill gróðureldur ógnaði byggingum í bænum í gær og í nótt. Mikið lið slökkviliðs barðist við eldinn og vindáttinn hefur einnig orðið til þess að menn eru bjartsýnni en þeir voru í gærkvöldi að því er segir í umfjöllun Verdens gang í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Skógareldur ógnar byggð í Ála­sundi

Á þriðja hundrað manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stærðar skógareldar í Álasundi á Sunnmæri í Noregi. Til stendur að rýma fleiri heimili en suðurhlíð Sykurtopps á eyjunni Heissu, vestustu eyju byggðarinnar, er eitt eldhaf.

Erlent
Fréttamynd

Þegar landið logar

Gróður hefur aukist á Íslandi í gegnum árin, sumarbústaðahverfi hafa byggst upp víða með vaxandi skógum og veðráttan breyst þannig að hætta á gróðureldum hefur aukist Gróðureldar á Íslandi verða oftast þegar kviknar í sinu í þurru veðri en geta einnig orðið af mannavöldum.

Skoðun
Fréttamynd

Krafa að fá slökkvi­stöð í bæinn

Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.

Innlent
Fréttamynd

Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa

Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar. 

Innlent
Fréttamynd

„Mikið á­fall að vera allt í einu komin með eld í bak­garðinn“

Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að segja til um upp­tök gróðureldanna

Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.

Innlent