Gróðureldar „
1 2 3 4 … 4 ›
„Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Skæðir gróðureldar í suðurhluta Evrópu eru birtingarmynd loftslagsbreytinga samkvæmt fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis er aukin hætta á Íslandi sem sést í lengra sumri. Innlent 27.7.2026 22:49
Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Frakklandi og á Spáni. Evrópusambandið segir þetta eina umfangsmestu rýmingaraðgerð sem ráðist hefur verið í í álfunni. Íslensk kona var meðal þeirra sem þurftu að leita í fjöldahjálparstöð í Toledo. Innlent 27.7.2026 21:01
Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni. Erlent 27.7.2026 00:05
Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. Innlent 25.7.2026 19:45
Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ Innlent 25.7.2026 16:01
Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ Erlent 25.7.2026 14:04
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt. Erlent 25.7.2026 09:40
Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Eftir hitabylgjur sumarsins glíma Evrópuþjóðir nú margar hverjar við mikla gróður- og skógarelda. Erlent 24.7.2026 08:53
Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Sinueldur kviknaði á friðlandi á Ströndum í gær en hann hefur verið tilkynntur til lögreglu. Eldurinn kviknaði á friðlandi Dranga, sem var friðlýst árið 2021, en þeir sem slökktu eldinn segja mögulegt að hann hafi kviknað út frá sígarettu. Útlit sé fyrir að hann hafi fyrst kviknað við vörðu sem markar leiðina yfir Drangaháls. Innlent 21.7.2026 11:08
Loftgæðin hættuleg leikmönnum Reykmökkur frá skógareldum í Kanada lagðist yfir New York og New Jersey svæðið í Bandaríkjunum, þar sem úrslitaleikur HM milli Argentínu og Spánar fer fram um helgina. Loftgæðin eru sögð hættuleg en spænska landsliðið æfði utandyra í gær. Fótbolti 17.7.2026 10:23
Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Skógareldarnir sem brenna nú í Kanada eru síst í rénun og nú er staðfest að eldar brenna stjórnlaust á áttahundruð stöðum víðsvegar um landið en þó mest á svæðinu í kringum Toronto. Erlent 17.7.2026 07:46
Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði. Erlent 16.7.2026 18:40
Miklir skógareldar nærri París Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. Erlent 13.7.2026 07:29
Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Hundruð slökkviliðsmanna berjast enn við að ráða niðurlögum einna mannskæðustu gróðurelda í sögu Spánar. Eldarnir kviknuðu á fimmtudaginn í Almería-héraði á suðausturhluta landsins. Minnst tólf eru látnir og tuttugu og þriggja er enn saknað. Erlent 11.7.2026 14:56
Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Tólf hafa látist í gróðureldum í Almería í suðurhluta Spánar og sex eru slasaðir. Um 150 slökkviliðsmenn hafa unnið að því að ráða að niðurlögum eldsins, sem er talinn hafa kviknað þegar raflínur féllu til jarðar. Erlent 10.7.2026 07:14
„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar. Innlent 24.5.2026 22:25
„Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Sviðsstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir öll meðferð elds úti í náttúrunni varasama á þessum árstíma. Gróðureldar sem kvikni séu að megninu til slys en slökkviliðið er með aukið viðbragð vegna gróðurelda. Innlent 4.5.2026 12:15
Sinueldur í Grafarvogi Verið er að vinna að því að slökkva sinueld sem upp kom rétt í þessu í Grafarvogi. Einungis einn dælubíll var sendur á staðinn. Innlent 1.5.2026 15:57
Aukin hætta á gróðureldum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga vegna langvarandi þurrka. Innlent 22.4.2026 16:33
Sinueldur við Vík í Mýrdal Slökkvilið reynir nú að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði skammt undan Vík í Mýdal, nánar tiltekið í vesturbrekkum Háfells. Innlent 18.4.2026 17:26
Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Slökkvilið Fjarðabyggðar var í tvígang kallað út vegna gróðurelda í dag. Grunur er um að íkveikja hafi valdið seinni brunanum, sem náði yfir um tveggja hektara svæði. Innlent 21.3.2026 21:22
Skárri staða í Álasundi Betur fór en á horfðist í Álasundi í Noregi þar sem mikill gróðureldur ógnaði byggingum í bænum í gær og í nótt. Mikið lið slökkviliðs barðist við eldinn og vindáttinn hefur einnig orðið til þess að menn eru bjartsýnni en þeir voru í gærkvöldi að því er segir í umfjöllun Verdens gang í morgun. Erlent 18.3.2026 07:34
Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Á þriðja hundrað manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stærðar skógareldar í Álasundi á Sunnmæri í Noregi. Til stendur að rýma fleiri heimili en suðurhlíð Sykurtopps á eyjunni Heissu, vestustu eyju byggðarinnar, er eitt eldhaf. Erlent 17.3.2026 23:56
Þegar landið logar Gróður hefur aukist á Íslandi í gegnum árin, sumarbústaðahverfi hafa byggst upp víða með vaxandi skógum og veðráttan breyst þannig að hætta á gróðureldum hefur aukist Gróðureldar á Íslandi verða oftast þegar kviknar í sinu í þurru veðri en geta einnig orðið af mannavöldum. Skoðun 3.3.2026 07:31
Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030. Innlent 24.2.2026 12:23
Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar. Innlent 24.2.2026 09:11
„Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn. Innlent 23.2.2026 19:03
Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda. Innlent 23.2.2026 13:02
Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu verið í hættu vegna sinueldsins við Elliðavatn ef vindáttin hefði verði önnur í gær. Vatnsbólið er að finna ekki langt frá svæðinu sem brann og geta brunar sem þessi mengað þau. Innlent 23.2.2026 08:02
Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Nóttin var með rólegasta móti hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eftir annasaman dag í gær þar sem mikill sinueldur logaði víða. Mestur bruninn varð við suðvesturhorni Elliðavatns og í átt að Heiðmörk en þar tókst að ráða niðurlögum eldsins á áttunda tímanum í gærkvöldi. Innlent 23.2.2026 06:29