Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Pep Guardiola, stjóri Manchester City, sló á létta strengi á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Manchester City við Everton í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á mánudagskvöld. Hann skýrði hvers vegna hann var staddur á leik í ensku neðri deildunum á kostnað þess að sjá stórleik í Meistaradeildinni. Enski boltinn 1.5.2026 23:15
Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Manchester City-menn eru sagðir argir yfir því hvernig leikjadagskrá þeim er boðið upp á nú í lok tímabilsins, þegar þeir freista þess að vinna þrennuna á Englandi. Enski boltinn 28.4.2026 23:16
Stones rifar seglin hjá City Enski landsliðsmaðurinn John Stones mun yfirgefa herbúðir Man. City í sumar eftir tíu ára dvöl hjá félaginu. Enski boltinn 28.4.2026 15:02
Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn 22.4.2026 22:05
Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Erling Haaland, framherji Manchester City, segir að kærasta sín, Isabel Haugseng Johansen, sé ekki par sátt þegar hann kemur allur lurkum laminn heim eftir leiki. Enski boltinn 21. apríl 2026 07:04
Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Þótt Arsenal hafi fatast flugið í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar eru enn yfirgnæfandi líkur á að liðið verði Englandsmeistari samkvæmt útreikningum ofurtölvu Opta. Enski boltinn 20. apríl 2026 23:16
Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar David Raya, markvörður Arsenal, ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir svekkjandi 2-1 tap toppliðsins fyrir Manchester City á Etihad-vellinum í gær. Raya segir nóg eftir af tímabilinu og fleiri tækifæri bíði Arsenal-liðsins. Enski boltinn 20. apríl 2026 11:01
Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Brasilíski miðvörðurinn Gabriel getur þakkað Erling Haaland fyrir að hafa sloppið við rautt spjald í toppslag Arsenal og Manchester City í gær, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 20. apríl 2026 09:32
„Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, er enn á ný með liðið sitt á mikilli siglingu á lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar og getur nú komið því á toppinn með sigri á Burnley í vikunni. Enski boltinn 19. apríl 2026 18:52
„Við fengum stór færi til að vinna“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sá sitt lið tapa toppslagnum á móti Manchester City og City getur nú tekið toppsætið af Arsenal með sigri á Burnley í næstu viku. Enski boltinn 19. apríl 2026 18:35
Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Manchester City vann 2-1 sigur á Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Aprílmánuður ætlar því að verða Arsenal-mönnum enn á ný afar erfiður undir stjórn Mikel Arteta. Enski boltinn 19. apríl 2026 17:24
Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Arsenal fékk ekki góðar fréttir þegar í ljós kom hver verður með flautuna þegar úrslitin gætu mögulega ráðist í baráttunni um enska meistaratitilinn 2026. Enski boltinn 15. apríl 2026 06:32
Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í sex stig með öruggum sigri á Chelsea, 0-3, á Stamford Bridge í gær. Alls voru níu mörk skoruð í leikjunum fjórum í gær. Enski boltinn 13. apríl 2026 08:33
Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Manchester City vann 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið nálgast Arsenal í toppbaráttunni. Enski boltinn 12. apríl 2026 17:25
Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Eftir 4-0 sigurinn á Liverpool í ensku bikarkeppninni í gær staðfesti Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari Manchester City, að fyrirliðinn Bernardo Silva myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans við það rennur út í sumar. Enski boltinn 5. apríl 2026 22:22
Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Dregið var í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta skömmu eftir lokaleik átta liða úrslitanna, milli West Ham United og Leeds United. Enski boltinn 5. apríl 2026 19:03
Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. Enski boltinn 4. apríl 2026 13:35
City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Manchester City er svo gott sem orðið Englandsmeistari eftir 0-3 sigur á útivelli í nágrannaslag gegn Manchester United. Enski boltinn 28. mars 2026 15:58
Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Spænski landsliðsmiðjumaðurinn Rodri, handhafi Gullboltans 2024, hefur nú viðurkennt að það yrði erfitt fyrir hann að hafna tilboði frá Real Madrid. Enski boltinn 26. mars 2026 09:02
Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Norski knattspyrnumaðurinn Erling Haaland, stjörnuleikmaður Manchester City, keypti sérstaka útgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar á 1,3 milljónir norskra króna og gaf bókasafninu í heimabæ sínum eintakið. Bókin er sú dýrasta sem selst hefur í Noregi. Erlent 24. mars 2026 20:09
Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ „Það var eins og um „góðgerðarskiptingu“ væri að ræða þegar Phil Foden kom inn á í uppbótartíma í úrslitaleik Manchester City og Arsenal í deildabikarnum,“ segir Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins. Enski boltinn 24. mars 2026 06:31
Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Nico O'Reilly var hetja Manchester City í sigrinum á Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins og hann vonast til að þetta högg fyrir topplið ensku úrvalsdeildarinnar muni hafa jákvæð áhrif fyrir City-menn í titilbaráttunni. Enski boltinn 24. mars 2026 06:01
Haaland fær frí frá landsliðinu Erling Haaland fær frí frá norska landsliðinu þessa vikuna og mun ekki mæta á landsliðsæfingu fyrr en á laugardag. Fótbolti 23. mars 2026 12:03
O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Nico O'Reilly, sem fagnaði 21 árs afmæli í gær, var hetja Manchester City á Wembley í dag þegar hann skoraði bæði mörkin gegn Arsenal í 2-0 sigri í úrslitaleik enska deildabikarsins í fótbolta. Enski boltinn 22. mars 2026 18:19
Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Stuðningsmenn annarra liða en Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hallast að því að styðja þá bláklæddu í titilbaráttunni. Liðin mætast í úrslitaleik enska deildabikarsins í dag. Enski boltinn 22. mars 2026 13:01