Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Valur - Grinda­vík | Vals­menn reyna að slá frá sér í leik tvö

Hér fer fram bein textalýsing frá leik tvö í einvígi Vals og Grindavíkur í undanúrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta. Einvígið stendur 1-0 Grindavík í vil eftir fyrsta leik liðanna í Grindavík. Flautað verður til leiks í N1 höllinni klukkan korter yfir sjö í kvöld. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.

Körfubolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Við þurfum að vera til­búin að takast á við eldgosavá

Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Tungl­skot og til­rauna­stofa

Þann 10. nóvember 2023 var Grindvíkingum skotið út í geim. Ekki með undirbúningi. Heldur inn í algjöra óvissu. Síðan þá höfum við spurt: hvenær koma þau aftur heim? En kannski er stærri spurningin sú hvort við séum enn í sambandi við þau.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er gamli maðurinn svo ég tek alla þá hvíld sem er í boði“

Grindavík tryggði sig inn í 4-liða úrslit Bónus deildar karla í kvöld þegar þeir gerðu sér góða ferð í IceMar-höllina í Njarðvík í kvöld. Eftir heldur kaflaskiptan leik voru það Grindvíkingar sem fóru með sjö stiga sigur 84-91 og um leið 3-1 sigur í einvíginu. Jeremy Pargo ræddi við Vísi eftir leik.

Sport
Fréttamynd

Kviku­hlaup enn lík­legasta sviðs­myndin

Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin. 

Innlent
Fréttamynd

Vonar að skóla­starf verði í bænum þrátt fyrir til­mælin

Formaður hagsmunasamtaka um endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur vonast til að bæjaryfirvöld haldi áfram vinnu við undirbúning skólastarfs í bænum þrátt fyrir tilmæli um að börn flytji ekki til Grindavíkur meðan óvissa varir. Margt geti breyst á stuttum tíma og mikilvægt að halda uppbyggingu áfram.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fá valdið aftur

Yfir þrjátíu prósent þeirra sem verða á kjörskrá í Grindvík í sveitarstjórnarkosningum í vor eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Oddvitar þeirra tveggja flokka sem tilkynnt hafa framboð telja húsnæðismál eitt stærsta málið og íbúarnir vilja völdin aftur í hendur bæjaryfirvalda.

Innlent
Fréttamynd

Mesta kvikusöfnun til þessa

Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos.

Innlent