Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Afturelding hélt áfram sigurgöngu sinni í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld þegar liðið vann 3-2 heimasigur á Leikni. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 21:10
Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn FH vann stórsigur á Grindavík/Njarðvík, 6-1, í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta á JBÓ-vellinum í Njarðvík í kvöld. FH fór með sigrinum upp í toppsæti deildarinnar og er þar með 26 stig, tveimur meira en Breiðablik í öðru sæti. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 21:05
Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Argentínski fótboltmaðurinn Valentin Barco fékk ekki að koma inn á völlinn í undanúrslitaleik Argentínu og Englands en þrátt fyrir engar spilamínútur tókst honum samt að pirra Englendinga og koma sér í fréttirnar. Fótbolti 16. júlí 2026 20:00
Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Færeyska félagið NSÍ Runavík er komið áfram í aðra umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar eftir að liðið sótti sigur til Möltu í kvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 19:49
Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Bubbi Morthens hélt upp á sjötugsafmælið sitt í síðasta mánuði og KR-ingar ákváðu að færa honum sérstaka gjöf í tilefni stórafmælisins. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 19:30
Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Vestri er úr leik í undankeppni Evrópudeildarinnar eftir 3-0 tap, 6-0 samanlagt í einvíginu gegn Qarabag frá Aserbaísjan. Vestramenn detta niður í undankeppni Sambandsdeildarinnar og mæta RFS frá Lettlandi í annarri umferð. Fótbolti 16. júlí 2026 19:15
Uppgjörið: Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Stjarnan heldur til Finnlands í aðra umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 2-2 jafntefli við Víking í Götu í Klaksvík í Færeyjum í kvöld. Einvígið endaði samanlagt 5-3 fyrir Stjörnuna. Fótbolti 16. júlí 2026 19:00
Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Bandaríkjaforseti mun vera meðal áhorfenda á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta á milli Spánar og Argentínu en þetta staðfesti Hvíta húsið í kvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 17:56
Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason verður ekkert með íslenska landsliðinu á næstunni en hann er með slitið krossband. Fótbolti 16. júlí 2026 17:37
Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Falklandseyjar eru argentínskar, að sögn leikmanna argentínska landsliðsins, en ekki að mati bresku ríkisstjórnarinnar. Fótbolti 16. júlí 2026 17:31
Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Craig Gordon, markvörður Hearts í Skotlandi og elsti leikmaður HM í sumar, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Fótbolti 16. júlí 2026 17:03
Endurskoða sparkvöll við Landakot Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að hverfa frá áformum í núverandi mynd um sparkvöll á Landakotstúni. Málinu hefur aftur verið vísað til umhverfis- og skipulagssviðs. Innlent 16. júlí 2026 16:10
Saliba frá í nokkra mánuði Franski varnarmaðurinn William Saliba verður frá keppni næstu 4-5 mánuðina vegna bakmeiðsla. Enski boltinn 16. júlí 2026 15:45
Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, stefnir á að halda áfram að þjálfa liðið fram yfir Evrópumótið 2028. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir skiptingarnar sínar þegar England reyndi að halda forystunni á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 15:16
Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Arsenal hefur komist að samkomulagi við belgíska félagið Club Brugge um kaup á gríska landsliðsmanninum Christos Tzolis. Enski boltinn 16. júlí 2026 14:08
Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Fótboltamaðurinn Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Víkings til FH út yfirstandandi leiktíð, eftir að hafa komið til Víkinga í vor frá Kolding í Danmörku. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 13:30
Brjálaðar boltamömmur berjast Boltamömmur eru nýir gamanþættir sem segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótbolta og lendir á skrautlegu sviði foreldrasamskipta, keppnisskaps og tilfinninga. Vísir frumsýnir í dag stiklu fyrir þættina sem koma á Sjónvarp Símans í september. Bíó og sjónvarp 16. júlí 2026 13:26
Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Ólafsvíkingurinn Sædís Rún Heiðarsdóttir gekk í dag til liðs við þýska knattspyrnufélagið Köln og verður þar með samherji Söndru Maríu Jessen, líkt og í íslenska landsliðinu. Fótbolti 16. júlí 2026 13:05
Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ „Það var bara erfitt að horfa á þetta,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands og sparkspekingur, um endalok Englands á HM. Hann tekur undir gagnrýni á kollega sinn Tomas Tuchel en segir þjálfara þurfa að taka ákvarðanir fljótt og það geti leitt til mistaka. Fótbolti 16. júlí 2026 13:03
Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar. Innlent 16. júlí 2026 12:36
Argentíska landsliðið má búast við sekt Argentína vann England í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Argentíska liðið má þó búast við sekt þar sem leikmenn liðsins veifuðu fána með pólitískum skilaboðum eftir leik. Fótbolti 16. júlí 2026 12:30
„Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Cristian Romero, varnarmaður argentínska landsliðsins og Tottenham á Englandi, skaut föstum skotum á sjónvarpsmanninn og fyrrverandi fótboltamanninn Gary Neville eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum á HM í gærkvöld. Fótbolti 16. júlí 2026 12:01
Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Yfirburðir Argentínumanna voru algjörir á þeim tæplega 40 mínútum sem enn voru eftir af leiknum, eftir að England komst í 1-0 í undanúrslitum á HM í fótbolta í gær. Fótbolti 16. júlí 2026 11:32
Adam Ægir mættur til KA KA hefur fengið til sín kant- og sóknarmanninn Adam Ægi Pálsson frá Val en hann var formlega kynntur til leiks hjá sínu nýja félagi í dag. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 11:19
Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Valur og Víkingur eru bæði aðeins einu stigi frá botni Bestu deildar kvenna í fótbolta, eftir töpin gegn ÍBV og Breiðabliki í gærkvöld. Blikakonur komust á toppinn, að minnsta kosti í sólarhring, og Eyjakonur eru aðeins fjórum stigum á eftir þeim. Mörkin úr leikjunum í gær má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 11:03
Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Það voru bara fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma og England enn 1-0 yfir þegar flúraði miðjumaðurinn Enzo Fernández sýndi í gærkvöld eina af ástæðum þess að hann er dýrasti Argentínumaður í sögu fótboltans. Fótbolti 16. júlí 2026 10:01
Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Micah Richards fékk þær harmafréttir að faðir hans væri látinn skömmu áður en bein útsending BBC frá leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta hófst. Fótbolti 16. júlí 2026 09:34
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Framherjinn efnilegi Bjarki Hrafn Garðarsson er farinn frá Stjörnunni til þýska stórliðsins Dortmund sem tilkynnti um komu hans í dag. Fótbolti 16. júlí 2026 08:35
Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 07:35