„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ „Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 16. maí 2026 17:43
The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Samkvæmt heimildum The Athletic verður Xabi Alonso næsti knattspyrnustjóri Chelsea. Hann mun skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Enski boltinn 16. maí 2026 17:35
Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Eftir tapið fyrir Aston Villa, 4-2, stakk Mohamed Salah niður penna á Instagram og sagði að Liverpool yrði að endurheimta einkenni sitt, heví metal fótboltann sem það spilaði undir stjórn Jürgens Klopp. Enski boltinn 16. maí 2026 17:16
Kane endaði deildina með þrennu gegn Ísaki og félögum Bayern Munchen fagnaði 5-1 sigri gegn Köln í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 16. maí 2026 15:50
Eyjakonur og Austfirðingar flugu áfram í átta liða úrslit ÍBV og FHL eru komin áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Eyjakonur unnu 0-5 sigur fyrir norðan gegn Tindastóli og Austfirðingar sóttu 1-2 sigur gegn Fylki í Árbænum. Íslenski boltinn 16. maí 2026 15:16
Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Eftir afleita byrjun í norsku deildinni hefur Brann tekið sig taki. Liðið fagnaði þriðja deildarsigrinum í röð í dag, 2-1 gegn tíu mönnum KFUM Oslo. Fótbolti 16. maí 2026 14:05
Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Celtic varð Skotlandsmeistari fimmta árið í röð með 3-1 sigri gegn Hearts, liði Tómas Bent Magnússonar. Fótbolti 16. maí 2026 13:34
Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Manchester City er FA bikarmeistari eftir 1-0 sigur gegn Chelsea í úrslitaleik. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með afar laglegri hælspyrnu. Enski boltinn 16. maí 2026 13:30
Viktor Bjarki missir af lokaleiknum vegna meiðsla Viktor Bjarki Daðason mun missa af síðasta leik tímabilsins hjá FC Kaupmannahöfn vegna minniháttar meiðsla. Fótbolti 16. maí 2026 12:28
Bríet treður upp á stórleiknum Poppstjarnan Bríet mun koma fram í hálfleik á leik Þróttar og Breiðabliks í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna síðar í dag. Ásamt hálfleikssýningunni mun Þróttur spila í og selja sérstakar treyjur úr smiðju söngkonunnar. Íslenski boltinn 16. maí 2026 11:31
Lewandowski á förum frá Barcelona Robert Lewandowski er á förum frá spænska félaginu Barcelona eftir fjögur farsæl tímabil. Fótbolti 16. maí 2026 11:21
„Mourinho er númer eitt“ Þjálfarinn Álvaro Arbeloa ræddi við blaðamenn fyrir leik Real Madrid gegn Sevilla en aðeins tvö nöfn bar á góma á blaðamannafundinum, José Mourinho og Kylian Mbappé. Fótbolti 16. maí 2026 11:01
Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Búist er við látum þegar úrslitaleikur um skoska meistaratitilinn milli Celtic og Hearts fer fram í dag. Dómarinn í síðasta leik Celtic hefur verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag eftir að persónulegum upplýsingum um hann var lekið á netið. Fótbolti 16. maí 2026 10:31
Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Liverpool tapaði 4-2 á útivelli gegn Aston Villa í gærkvöld og er því enn ekki öruggt um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liverpool hefur aldrei fengið jafnmörg mörk á sig á einni leiktíð í 20 liða úrvalsdeild. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. Enski boltinn 16. maí 2026 08:02
„Ég vildi að hann væri skoskur“ John McGinn, fyrirliði Aston Villa, var kampakátur eftir að liðið tryggði sig formlega inn í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð með 4-2 sigri gegn Liverpool í kvöld. Enski boltinn 15. maí 2026 21:37
Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 15. maí 2026 20:35
Víkingar áfram eftir framlengda spennu Víkingur Reykjavík komst í kvöld í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta en þurfti til þess framlengingu gegn Lengjudeildarliði Keflavíkur. Íslenski boltinn 15. maí 2026 20:30
Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur heldur áfram að gera góða hluti og sló í kvöld Valskonur út úr Mjólkurbikarnum, í 16-liða úrslitum, með 3-2 sigri á Hlíðarenda. Fjögur lið eru komin áfram. Íslenski boltinn 15. maí 2026 19:58
Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers á ríkan þátt í frábærri byrjun Brann á tímabilinu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hún var á ný á skotskónum í dag í 7-0 stórsigri gegn Haugesund á útivelli. Fótbolti 15. maí 2026 18:29
Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Middlesbrough hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kallað er eftir brottrekstri Southampton úr umspili ensku B-deildarinnar sökum ásakana um njósnir á æfingasvæði fyrrnefnda liðsins. Enski boltinn 15. maí 2026 14:59
FIFA og Sádar í eina sæng FIFA hefur gert styrktarsamning við fjárfestingarsjóð Sádi-Arabíu, PIF, sem verður stuðningsaðili komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. PIF bætist við sádíska olíufyrirtækið Aramco sem einn aðalstyrktaraðili mótsins. Fótbolti 15. maí 2026 13:18
„Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM Fótboltalandslið Íran var kvatt með mikilli viðhöfn í höfuðborginni Tehran þegar liðið lagði af stað á heimsmeistaramótið. Fótbolti 15. maí 2026 12:30
FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Hópur vísindamanna varar FIFA við að öryggisráðstafanir sambandsins fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta í sumar séu ófullnægjandi þegar kemur að þeim mikla hita sem stefnir í að einhverjir leikir mótsins verði spilaðir í og gætu sett leikmenn í alvarlega hættu. Fótbolti 15. maí 2026 11:02
Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Manchester United hefur boðið bráðabirgðastjóranum Michael Carrick tveggja ára samning út tímabilið 2027-28 með möguleika á eins árs framlengingu. Viðræður eru hafnar og vonir eru bundnar við að hann skrifi undir fyrir síðasta heimaleik tímabilsins á sunnudag. Enski boltinn 15. maí 2026 10:47
„Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Alexandra Popp er á förum frá Wolfsburg og gekk tárvot af velli eftir tap í bikarúrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í gær. Í viðtali eftir leik var hún spurð út í föður sinn sem lést árið 2022. Fótbolti 15. maí 2026 10:31
Heskey yngri tryggði City titil gegn United Reigan Heskey tryggði U18 ára liði Manchester City unglingabikar Englands er hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri liðsins á Manchester United í úrslitaleik keppninnar í gærkvöld. Enski boltinn 15. maí 2026 09:31
Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi Kaoru Mitoma verður ekki með japanska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í fótbolta vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Brighton gegn Wolves á dögunum. Fótbolti 15. maí 2026 08:33
„Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Kylian Mbappé fékk ekki byrjunarliðssæti í leik Real Madrid gegn Oviedo í gærkvöld og þegar hann kom inn af varamannabekknum bauluðu stuðningsmenn liðsins hástöfum. Fótbolti 15. maí 2026 08:02
Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Glódís Perla Viggósdóttir tók við þýska bikarnum sem fyrirliði Bayern Munchen eftir 4-0 sigur í úrslitaleiknum gegn Wolfsburg. Brjáluð fagnaðarlæti Bæjara eftir þennan sögulega sigur má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 15. maí 2026 07:03
Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Florentino Perez forseti Real Madrid heldur áfram að stela fyrirsögnum af leikmönnum liðsins. Skilaboð sem mótmæltu hans stjórn voru fjarlægð úr stúkunni á leik liðsins gegn Oviedo í kvöld. Fótbolti 14. maí 2026 21:39
Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Íslenski boltinn