Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 28. september 2026 11:32 Roberto Mancini tók nýlega við ítalska landsliðinu í annað sinn. Samningur hans við Manchester City á sínum tíma er meðal þess sem félagið verður dæmt fyrir. Christian Charisius/picture alliance via Getty Images Roberto Mancini, þjálfari Ítalíu og fyrrverandi þjálfari Manchester City, vildi fátt segja um fjármálabrot síns gamla félags meðan hann var knattspyrnustjóri þess.
Líkt og greint var frá á föstudag verður City fundið sekt um 114 brot af 115 ákæruliðum vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Meðal þess sem City er dæmt fyrir er að hafa ekki „allar upplýsingar um laun knattspyrnustjóra í viðeigandi samningum við knattspyrnustjóra sinn“ á árunum 2009 til 2013. Mancini stýrði þá liðinu og vann fyrsta Englandsmeistaratitil City í 44 ár. Samkvæmt þýska tímaritinu Der Spiegel er Mancini sagður hafa á einum tímapunkti þénað 1,45 milljónir punda í grunnlaun og 1,75 milljónir punda sem ráðgjafi fyrir lið í Abu Dhabi sem er undir stjórn Sheikh Mansour, eiganda City. Ráðgjafastarfið hafi því í raun verið yfirvarp til að City gæti greitt Mancini hærri laun án þess að upphæðin væri á reikningum City gagnvart reglum um fjárhagslega háttvísi. Dómurinn hefur ekki opinberlega verið staðfestur af ensku úrvalsdeildinni. Mancini var spurður út í málið á blaðamannafundi í Tyrklandi í gær. Þar dró þjálfarinn hinn meinta dóm í efa og sagði að þetta væri mál félagsins, ekki hans. „Þetta er ekki mál sem varðar mig,“ sagði Mancini í Bursa fyrir leik í Þjóðadeild UEFA á mánudag. „Þetta er ekkert nýtt því þetta mál hefur verið rætt síðustu fjögur eða fimm ár,“ „Manchester City hefur ekki verið fundið sekt og hinn meinti tvöfaldi samningur er ekki mitt mál. Það er þeirra mál, ekki mitt.“ Í yfirlýsingu á föstudag neitaði City ekki sektardómunum og sagði að ferlið „væri enn í gangi“. Í sinni eigin yfirlýsingu á laugardag sagði Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Man City, að „ekkert hefði breyst“ varðandi málið og bætti við að „trú okkar og ásetningur um að sanna sakleysi félagsins er jafn sterkur og þegar þetta hófst“. Lærisveinar Mancini töpuðu fyrsta leik í Þjóðadeildinni, 2-0 fyrir Belgum á heimavelli á föstudaginn var. Þeir mæta Tyrkjum klukkan 18:45 í kvöld og sá leikur í beinni á Viaplay. Á sama tíma eigast við Belgía og Frakkland í sama riðli. Sá leikur verður í beinni klukkan 18:40 á Sýn Sport Viaplay.
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Ítalski boltinn Þjóðadeild karla í fótbolta Enski boltinn Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fleiri fréttir Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Sjá meira