Sport

Vikings er eina ósigraða liðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
T.J. Hockenson og Justin Jefferson, leikmenn Vikings, fagna um helgina.
T.J. Hockenson og Justin Jefferson, leikmenn Vikings, fagna um helgina. vísir/getty

Eftir sjö leikvikur í NFL-deildinni er aðeins eitt lið ósigrað. Það er Minnesota Vikings. Fáir höfðu það á bingóspjaldinu sínu fyrir tímabilið.

Vikings marði sigur, 16-10, á Indianapolis Colts um helgina. Frábæran árangur liðsins má þakka vörn liðsins sem hefur verið ótrúleg en sóknarleikurinn þarf að skána.

San Francisco 49ers og Kansas City Chiefs fóru ósigruð inn í helgina en fengu bæði á baukinn.

Meistarar Seattle Seahawks sýndu mátt sinn og megin gegn Chiefs og unnu ótrúlegan yfirburðasigur, 20-3. Það ber að varast að afskrifa meistarana of snemma.

Meiðsli hafa leikið 49ers grátt í vetur og pakkinn varð einfaldlega of þungur gegn Falcons. Margir lykilmenn fjarverandi og hlauparinn Christian McCaffrey meiddist í fyrstu sókn leiksins. Það var einfaldlega of mikið.

Eftir sigur Miami um helgina þá er aðeins eitt lið sem hefur ekki unnið leik. Það er LA Chargers sem mætir nágrönnum sínum í LA Rams um næstu helgi.

Úrslit:

Bears-Patriots 30-24

Saints-Steelers 10-16

Falcons-49ers 29-20

Titans-Browns 24-27

Vikings-Colts 16-10

Jets-Dolphins 25-28

Panthers-Buccaneers 13-43

Ravens-Bengals 13-35

Texans-Giants 21-27

Cardinals-Broncos 16-30

Lions-Packers 20-17

Raiders-Rams 21-35

Seahawks-Chiefs 20-3

Eagles-Cowboys 21-38

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×