Innlent

Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna

Birgir Olgeirsson skrifar
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er framsögumaður velferðarnefndar um leigubremsuna. Dóttir hennar, Karen Áslaug Vignisdóttir, undirritar umsögn Seðlabankans þar sem varað er við að breytingarnar geti unnið gegn markmiðum sínum.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er framsögumaður velferðarnefndar um leigubremsuna. Dóttir hennar, Karen Áslaug Vignisdóttir, undirritar umsögn Seðlabankans þar sem varað er við að breytingarnar geti unnið gegn markmiðum sínum. Vísir

Dóttir formanns velferðarnefndar er meðal undirritenda gagnrýninnar umsagnar Seðlabankans um leigubremsu ríkisstjórnarinnar. Bankinn varar við því að breytingarnar geti fækkað leiguíbúðum og dregið úr húsnæðisöryggi. Móðir hennar er framsögumaður nefndarinnar í málinu.

Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika.

Karen er dóttir Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, þingmanns Flokks fólksins og formanns velferðarnefndar, samkvæmt æviágripi Kolbrúnar á Alþingisvefnum. 

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velferðarnefndar, hefur umsjón með meðferð leigubremsunnar í nefndinni. Frumvarpinu er ætlað að auka húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur.Vísir/Anton Brink

Kolbrún er jafnframt skráð framsögumaður nefndarinnar um frumvarpið og hefur því umsjón með meðferð þess þar.

Frumvarpið er lagt fram af félags- og húsnæðismálaráðherra. Það á meðal annars að tryggja að minnst tólf mánuðir líði milli reglubundinna breytinga á leigufjárhæð og að slíkar hækkanir fari ekki umfram hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Markmiðið er aukið húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleiki fyrir leigjendur.

Varar við að áhrifin verði þveröfug

Seðlabankinn telur almennt jákvætt að draga úr sjálfvirkri og tíðri vísitölutengingu. Bankinn varar hins vegar við því að takmarkanir á leiguhækkunum geti dregið úr hvötum til útleigu, viðhalds og endurbóta. Afleiðingin geti orðið minna framboð, lengri biðlistar og lakara húsnæði.

Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, er meðal undirritenda umsagnar bankans um leigubremsuna. Bankinn varar við minna framboði leiguhúsnæðis og styttri leigusamningum.Vísir/Vilhelm

„Áhrifin myndu þá ganga gegn markmiðum frumvarpsins,“ segir í umsögninni.

Þá geti leigusalar brugðist við með styttri leigusamningum. Bankinn telur jafnframt að breytt tíðni leiguhækkana ein og sér hafi að öðru óbreyttu ekki áhrif á verðbólgu til lengri tíma. Hann gagnrýnir einnig að takmarkanirnar eigi að ná til atvinnuhúsnæðis án fullnægjandi skýringa.

Sex umsagnir og skiptar skoðanir

Við vinnslu fréttarinnar höfðu sex umsagnir verið birtar á vef Alþingis. Þar koma fram ólíkar áherslur: BSRB styður frumvarpið, SVÞ leggst gegn því og óhagnaðardrifin leigufélög óska eftir breytingum.

SVÞ, Samtök verslunar og þjónustu, vilja að frumvarpið verði dregið til baka eða endurunnið að miklu leyti. Samtökin telja leigubremsu geta veitt núverandi leigjendum tímabundið skjól en dregið úr útleigu og fjárfestingu, þannig að kostnaðurinn lendi á þeim sem síðar komi inn á markaðinn. Þau vilja sérstaklega undanskilja atvinnuhúsnæði.

Brynja leigufélag fagnar aukinni vernd leigjenda en varar við áhrifum á rekstur óhagnaðardrifinna leigufélaga. Öll lán félagsins séu verðtryggð og greiðslur af þeim hækki mánaðarlega. Standi leigutekjur í stað í tólf mánuði þurfi að fjármagna mismuninn með skammtímalánum. Félagið vill áfram geta breytt leigu samhliða verðtryggðum lánum eða að fundin verði önnur lausn.

Námsmannafélög óttast verri kjör

Félagsstofnun stúdenta, Byggingarfélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta Akureyri skila sameiginlegri umsögn. Félögin taka undir markmið frumvarpsins en vilja undanþágu til að halda mánaðarlegri vísitölutengingu.

Þau segja að annars þurfi að reikna vænta verðbólgu og áhættuálag inn í upphafsleigu. Það geti sérstaklega bitnað á námsmönnum sem leigja stutt, svo sem skiptinemum.

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík vill einnig halda undanþágu fyrir óhagnaðardrifna aðila sem reka námsmannaíbúðir. Félagið telur afnám hennar geta leitt til óhagstæðari kjara fyrir námsmenn og bendir á að leigusamningar þeirra séu jafnan styttri og íbúðaskipti tíðari en almennt gerist.

BSRB vill flýta gildistöku

BSRB styður frumvarpið og fagnar auknum fyrirsjáanleika og hömlum á vísitöluhækkanir. Bandalagið vill þó að breytingarnar taki gildi sem fyrst, en fyrirhuguð gildistaka er 1. júlí 2027.

BSRB bendir á að samráði um frumvarpið hafi verið sleppt vegna hættu á að leigusalar hækkuðu leigu áður en lögin tækju gildi. Þeim gefist engu að síður rúmur tími til slíkra hækkana fram að næsta sumri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×