Innlent

Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorgerður Katrín ásamt Astrid Bergmål aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, Guy Parmelin forseta Sviss og ráðherra efnahags-, mennta- og rannsóknarmála, Lê Mạnh Hùng iðnaðar- og viðskiptaráðherra Víetnams og Brigitte Haas forsætisráðherra Liechtensteins og fjármálaráðherra.
Þorgerður Katrín ásamt Astrid Bergmål aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, Guy Parmelin forseta Sviss og ráðherra efnahags-, mennta- og rannsóknarmála, Lê Mạnh Hùng iðnaðar- og viðskiptaráðherra Víetnams og Brigitte Haas forsætisráðherra Liechtensteins og fjármálaráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar er að verða hálfnuð á ferðalagi sínu í Asíu. Hún undirritaði fríverslunarsamning við Víetnam og heldur nú til Kína.

„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur aðstoðarmanni sínum og Maríu Rut Kristinsdóttir, varaformanni þingflokks Viðreisnar og maka Maríu Rutar, sem er í fríi sem maki aðstoðarmannsins. 

Ytra hitti Þorgerður Katrín fyrir fulltrúa hinna EFTA ríkjanna en þar má finna aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, forseta Sviss, og forsætisráðherra Liechtenstein.

Ferðalagið var löngu skipulagt en ber upp á tíma þar sem kastljósið hefur beinst að Viðreisn eftir að Jón Gnarr, þingmaður flokksins, ákvað óvænt að yfirgefa þingflokkinn. Hann hefur með alls konar myndlíkingum lýst stöðu mála innan Viðreisnar og meðal annars líkt sambandi sínu við flokkinn sem sambandi við áfengissjúkling, sagt forystufólk í flokknum ekki þola hvert annað og lýst nei-inu í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem gríðarlegu áfalli.

Þorgerður Katrín stendur vaktina í utanríkismálum og sendi kveðju á Facebook á tíunda tímanum í morgun.

„Það var ánægjuleg stund að undirrita fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Víetnam í Hanoi fyrir hönd Íslands. Með samningnum opnum við nýjar dyr fyrir íslensk fyrirtæki inn á ört vaxandi markað með yfir 100 milljónir íbúa.

Viðskipti Íslands og Víetnam hafa þegar verið að aukast. Á síðasta ári jókst útflutningur okkar til Víetnam um 40% frá fyrra ári. Þar vega sjávarafurðir langþyngst, en tækifærin eru miklu fleiri. Íslensk fyrirtæki búa yfir dýrmætri þekkingu og hugviti, meðal annars á sviði jarðvarma og grænnar orku en talið er að jarðvarmi sé á 250-300 stöðum í Víetnam. Þar getum við komið sterk inn. Sömuleiðis er fjöldi tækifæra í tæknilausnum, sem mikil eftirspurn er eftir víða um heim,“ segir Þorgerður Katrín.

Með samningnum verði tollar á nær allan núverandi útflutning EFTA-ríkjanna til Víetnam felldir niður, ýmist strax við gildistöku eða í áföngum.

„Það þýðir betra samkeppnisumhverfi, greiðari aðgang að nýjum mörkuðum og aukin tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að vaxa og skapa verðmæti. Við Íslendingar erum lítil þjóð sem byggir stóran hluta velmegunar sinnar á viðskiptum við umheiminn. Þess vegna skiptir svo miklu máli að rækta viðskiptasambönd, ryðja hindrunum úr vegi og tryggja að íslenskt hugvit, vörur og þjónusta eigi greiða leið út í heim. Öflug utanríkisviðskipti skapa sömuleiðis störf, verðmæti og aukna hagsæld hér heima.“

Ferðalaginu í Asíu er ekki lokið.

„Næst er það svo Kína þar sem ég mun eiga tvíhliða fundi, meðal annars við utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra Kína. Á þessum tímum er mikilvægt sem aldrei fyrr að treysta aðgang að mörkuðum og byggja þannig undir atvinnulíf og samfélag. Tækifærin eru víða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×