Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2026 12:18 Steve Witkoff, sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, tekur í hönd „mannvinarins“ Vladímírs Pútín í Pétursborg í morgun. Hátt í fjögur hundruð óbreyttir borgarar féllu í rússneskum árásum á Úkraínu í september einum og sér. Vísir/EPA Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.
Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar, flaug til fundar við Pútín í Pétursborg eftir að hann fundaði með Volodýmýr Selenskí, forseta Úkraínu, auk forseta Finnlands og forsætisráðherra Noregs í Osló í gær. Á fundinum í dag lofaði Witkoff rússneska forsetann í hástert. „Þú talar svo mikið um að forsetinn minn, Donald Trump, sé mannvinur. Þú ert líka mannvinur, herra, og ég fagna því, ég lofa þig og ég þakka þér aftur,“ sagði Witkoff við Pútín. Rússneskir ríkisfjölmiðlar birtu myndband af ummælunum á samfélagsmiðlum. Trump’s special envoy Steve Witkoff to Vladimir Putin today: “You talk so much about Trump being a humanitarian, you are a humanitarian also, sir. And I salute that. I commend you.”[image or embed]— Ron Filipkowski (@ronfilipkowski.bsky.social) October 21, 2026 at 11:23 AM Að minnsta kosti þrír félu í árásum Rússa á Kænugarð og Kharkiv í nótt. Sameinuðu þjóðirnar segja að 328 óbreyttir borgarar í það minnsta hafi fallið í árásum Pútíns á Úkraínu í september einum og sér. Bandaríkjastjórn hefur á undanförnum dögum reynt að þvinga Úkraínumenn til þess að semja um frið við Rússa með ýmsum leiðum. Trump hefur þjarmað að Selenskí, sakað hann um að vilja ekki frið og sagt að Úkraínumenn ættu að velja sér nýjan forseta. Bandaríski forsetinn, sem er gramur Úkraínumönnum fyrir að ráðast á olíuinnviði í Rússlandi, samdi jafnframt við Rússa um kaup á olíu í síðustu viku, nokkuð sem bandarískir ráðamenn hafa brýnt fyrir öðrum þjóðum að gera ekki. Þá hafa Bandaríkjamenn takmarkað aðgang Úkraínumanna að gervihnattagögnum og nettengingum sem hefur bitnað á vörnum þeirra gegn látlausum rússneskum árásum. Trump sagði sjálfur að Pútín hefði komið vel fram í Úkraínu. Þau ummæli lét hann falla sama dag og Rússar drápu móður og eins árs gamalt barn hennar í árás á leikvöll í Kharkiv. Sex önnur börn létust í þeirri árás. A horrific Russian strike in the Kharkiv region. A “shahed” struck people directly – in a park near an ordinary café. Pure atrocity. Six people were killed, including children. A little girl was killed in a stroller – her name was Angelina, she was just over a year old, born in August 2025… Her mother’s name was Inna. She died in the hospital… Another girl who was killed was 11 years old. My condolences to their families and loved ones. Another 14 people were injured, including six more children. I am grateful to everyone who supports Ukraine under these circumstances and helps us shoot down “shaheds,” shoot down missiles, and stop Russian assaults. These are horrific photos, but behind them are shattered lives and the truth about this war. Lives must be protected. Ukraine needs air defense. You can't think about making money with Russia as long as it continues its asinine war. We ask that sanctions on Russia stay in place as long as the killings continue. We ask America to be strong, and we ask it to apply the Lindsey Graham law. We ask Europe to continue its support. We ask that everything possible be done to bring peace and guarantee security. Ukraine wants peace. It is Russia that has insisted on continuing the killing all this time. The world has enough strength to stop the war. That strength must finally be used – against the murderers.— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 19, 2026 Vinna að viðskiptasamningum við Rússa Witkoff hefur verið tíður gestur í Rússlandi, ásamt Jared Kushner, tengdasyni Trumps, en þeim hefur lítið orðið ágengt í því að koma á friði. Samhliða því hafa þeir rætt stóra viðskiptasamninga við Rússa. Þeir hafa bæði rætt samninga milli Bandaríkjanna og Rússlands og samninga fyrir hönd hóps fjárfesta frá Mið-Austurlöndum við Rússa. Sá samningur snýr að kaupum fjárfestanna á erlendum eigum rússneska orkufyrirtækisins Lukoil. Þar á meðal eru olíuvinnslur í Austur-Evrópu. Bandaríska ríkið myndi einnig eignast um fimmtán prósent í þessum eigum en fjárfestahópurinn er leiddur af bandaríska auðjöfrinum Todd Boehly, sem hefur gefið að minnsta kosti tvær milljónir dala í sjóði Trumps á undanförnum árum. Hann myndi eignast smáan hlut í eigunum. Fjárfestarnir frá Mið-Austurlöndum myndu eignast meira en helminginn. Meðal fjárfestanna eru félög í eigu konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og tveir bræður frá Katar sem hafa átt í töluverðum viðskiptum við Kushner og Ivönku Trump, eiginkonu hans og dóttur Trumps. Þá er sjeikinn Tahnoon bin Zayed Al Nahyan einnig einn af fjárfestunum. Hann tilheyrir áðurnefndri konungsfjölskyldu og á fyrir í viðskiptum við bæði Kushner og Witkoff, auk þess að eiga í viðskiptum við syni Donalds Trump.
Bandaríkin Donald Trump Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira