Skoðun

Þetta hjólar sig ekki sjálft

Birgir Birgisson skrifar

Um þessar mundir er margra ára grasrótarstarfi Reiðhjólabænda að ljúka. Félagið sem hóf starfsemi sína fyrir um 20 árum sem óformlegur hópur vina í raunheimum, óx og dafnaði með hjálp Facebookhóps og varð svo árið 2020 að skráðu félagi með kennitölu og var nýlega komið með rúmlega 200 skráða félagsmenn og konur. Félagið barðist á mörgum sviðum fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks, en nú er sem sagt komið að leiðarlokum.

Starfsemin hefur snert á flestu því sem viðkemur hjólreiðum, hvort sem það er sem íþrótt eða daglegum samgöngumáta. Hjólasöfnun er líklega það verkefni sem flest fólk þekkir, þar sem gömul og þreytt reiðhjól fengu nýtt líf með hjálp fjölmargra sjálfboðaliða og voru svo gefin fólki sem ekki hafði aðrar leiðir til að eignast reiðhjól. Á þeim 6 árum sem Reiðhjólabændur hafa komið að verkefninu, voru yfir 5.000 reiðhjól lagfærð og gefin. Og sumir þeirra sjálfboðaliða sem hjálpuðu til við verkefnið án þess að hafa nokkurn tíma áður komið að reiðhjólaviðgerðum starfa nú við reiðhjólaverkstæði borgarinnar.

Margt annað var gert, svo sem að sjá um Hjólagæslu á Menningarnótt, þrautabraut fyrir grunnskólabörn á Barnamenningarhátíð, þátttaka í viðburðum svo sem Evrópskri Samgönguviku, Reykjavíkurleikum og öðrum menningartengdum viðburðum. Auk þess rak félagið í mörg ár stórt verkstæði í félagsheimilinu að Sævarhöfða 31, sem var lengi vel aðgengilegt öllum sem þangað vildu koma. Þaðan voru erlendir hjólandi ferðamenn þjónustaðir, erlendir skiptinemar í borginni fengu lánuð reiðhjól til eigin afnota, grúskarar fundu mikilvæga varahluti í gömul og sjaldgæf hjól sem verið var að gera upp. Nokkrir kassabílar hafa verið smíðaðir með gjörðum og dekkjum frá verkstæði Reiðhjólabænda og í geymslum félagsins varð líka til vísir að merkilegu reiðhjólasafni sem hefði getað orðið hluti af stærra samhengi í samgöngusögu landsins. Því miður enda bæði varahlutirnar og reiðhjólasafnið að öllum líkindum í málmendurvinnslunni innan fárra daga.

Flest dagúrræði geðheilbrigðiskerfisins hafa á einhvern hátt notið góðs af starfsemi Reiðhjólabænda. Hvort sem það er með einfaldri yfirferð eða stærra viðhaldi á reiðhjólum, gjafahjólum til einstaklinga innan kerfisins, gjafahjólum til gesta neyðarskýlanna í Reykjavík eða aðstoð við að afla varahluta fyrir þau hjól sem úrræðin eiga sjálf. Fjölmargar vinnustundir sjálfboðaliða hafa tryggt að skjólstæðingar geðheilbrigðiskerfisins hafa þannig átt aðeins betri möguleika á svolítið auknum lífsgæðum. En því lýkur núna og úrræðin þurfa framvegis annað hvort að borga fyrir þjónustuna eða leggja niður hjólatúrana.

Grasrótarstarfsemi á því miður almennt verulega undir högg að sækja. Hvort það er almennt anníki á öðrum sviðum eða áhugaleysi sem veldur því að fólk hefur sig ekki upp úr sófanum og fer ekki af stað til að taka þátt í svona starfi er erfitt að vita. En það er alveg ljóst að svona starfsemi lifir ekki af ef enginn sinnir henni. Að smella á “like” hnappinn á Facebook síðu hópsins breytir engu, leggur ekkert til og hefur ekkert hagnýtt gildi. Það borgar enginn rafmagnsreikninginn eða leiguna með “like”-hnappnum. Fyrir svona félagsstarf er það miklu meira virði að fólkið sem nýtur góðs af starfinu mæti á staðinn einstaka sinnum og bjóði sína hjálp við að leysa þau verkefni sem þarf að leysa. Því verkefnin leysa sig ekki sjálf og af nógu er að taka.

Síðastliðin ár hafa nokkrir fastagestir borið uppi starfsemina á Sævarhöfðanum. Það er þetta fólk sem tryggði að á hverju mánudagskvöldi var góð stemmning á staðnum, mögulegt að fá aðstoð við hjólaviðgerðir, leiðbeiningar um dekkjaskipti og jafnvel bara spjall í kaffistofunni. Þetta fólk steig fram og hjálpaði til þegar þurfti að mála eitthvað, smíða eitthvað, setja upp eða taka niður. Þetta fólk bjó til félagið og hélt því gangandi. En því miður var þessi hópur allt of fámennur til að starfsemin gæti haldið áfram eða vaxið að neinu ráði. Það eru takmörk fyrir því hversu mikið hægt er að leggja á fáa einstaklinga í svona starfi, óháð því hversu mikið fólk leggur sig fram og hversu þakklátt félagið segist vera fyrir það.

Í lok október rennur út sá tími sem félagið hefur afnot af aðstöðunni við Sævarhöfða 31. Þar sem svona starfsemi er einfaldlega ekki möguleg ef hún á sér engan samastað er það mjög miður að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki boðið félaginu og öðrum í svipaðri stöðu neitt samtal um aðra valkosti eða mögulegt framhald. Engin tilraun hefur verið gerð af hálfu þeirra sem stýra borginni til að kynna sér þessa grasrótarstarfsemi eða mikilvægi hennar fyrir samfélagið áður en henni var gert ómögulegt að lifa af. Og rétt eins og í raunheimum þá deyr sú grasrót sem enga næringu fær.

Þau fyrirtæki sem hafa stutt starfsemina síðastliðin ár eiga svo sannarlega skilið allt okkar þakklæti. Þar er reiðhjólaverslunin Örninn fremst í flokki, en ekki síður Dominos sem sá verkstæðinu fyrir rjúkandi pizzum á hverju mánudagskvöldi í nokkur ár. Aðrir aðilar hafa líka stutt félagið, svo sem samfélagssjóðir Krónunnar og Landsbankans, sem sáu þýðingu félagsins fyrir samfélagið og hversu jákvæð áhrif það hafði fyrir þá sem þurftu mest á því að halda. Sömuleiðis var stuðningur Velferðarráðs Reykjavíkur mjög mikilvægur í þau fáu skipti sem hans naut í upphafi við uppbyggingu aðstöðunnar. Það var oft mikils virði fyrir þetta litla en samfélagslega mikilvæga félag að eiga trausta stuðningsmenn á réttum stöðum.

Eftir 20 ár með Bændarúntum, Opnum Verkstæðiskvöldum, námskeiðum, sýningum og viðburðum er komið að leiðarlokum og félagið verður formlega lagt niður á síðustu dögum októbermánaðar 2026. Þau sem ennþá vilja að til sé félagsskapur sem ber hag hjólandi fólks fyrir brjósti gætu kannski skoðað að skrá sig í Samtök um Bíllausan Lífsstíl eða Landssamtök hjólreiðamanna. Það er ekki nóg að skrá sig í Facebook hóp og bíða eftir að aðrir geri allt sem gera þarf. Þetta hjólar sig nefnilega ekki sjálft.

Höfundur er formaður Reiðhjólabænda




Skoðun

Sjá meira


×