Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar 1. október 2026 08:01 Núverandi fæðingarorlofskerfi vinnur gegn barneignum. Foreldrar á Íslandi eru hvattir til að hafa að lágmarki tvö og hálft ár á milli barna sinna, en sæta annars miklum skerðingum á fæðingarorlofsgreiðslum.Stjórnvöld virðast þannig vilja stýra því hve langt líður milli barna. Slík inngrip eru algeng í löndunum í kringum okkur, en þar eru þau yfirleitt í hina áttina, að hvetja til barneigna. Lækkandi fæðingartíðni er enda eitt stærsta viðfangsefni stjórnvalda víða um heim, og það á ekki síður við á Íslandi.Engu að síður eru foreldrar hvattir til að láta líða langt milli barna sinna og eignast fyrir vikið færri börn. Sjónarmiðin virðast byggja á því að foreldrar eigi að vera á vinnumarkaði um einhverja hríð á milli, en aldrei er tekið tillit til þess að þeir eiga að öllum líkindum eftir tugi ára á vinnumarkaði að barneignum loknum.280 þúsund krónur fyrir skatt Sjálf eignaðist ég barn í júní 2025 og á von á öðru í febrúar 2027. Um tuttugu mánuðir verða á milli barnanna, og þar sem ég dreifði orlofinu á tólf mánuði næ ég aðeins um átta mánuðum á vinnumarkaði fyrir fæðinguna.Fæðingarorlofssjóður reiknar 80% af meðallaunum á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu. Tekjur mínar á því tímabili eru nær eingöngu greiðslur úr fyrra orlofi. Þar sem ég dreifði því á tólf mánuði námu þær aðeins 62% af útreiknuðum rétti, en sjóðurinn horfir fram hjá því og reiknar 80% af þeim.Þetta kann að hljóma flókið, en útkoman er þessi: 280.000 krónur á mánuði fyrir skatt. Lesendur geta sjálfir dæmt um hvort hægt sé að lifa á þeirri upphæð hér á landi, en hún er lægri en bæði afborganir flestra af húsnæðislánum og almennur framfærslukostnaður heimilis. Hún samsvarar lágmarksgreiðslum sjóðsins, sem eru töluvert lægri en bæði atvinnuleysis- og örorkubætur. Eðli málsins samkvæmt vaknar þá spurningin hvort nýbakaðir foreldrar, með nýtt barn á framfæri, þurfi minna til að lifa en atvinnulausir og öryrkjar?Enginn sveigjanleiki er til að færa viðmiðunartímabilið eða taka tillit til þess að fyrra orlofi var dreift. Þar sem barnið fær ekki leikskólapláss fyrr en í fyrsta lagi í ágúst 2028, og landlæknir ráðleggur brjóstagjöf til tólf mánaða aldurs, mun ég aftur dreifa greiðslunum á tólf mánuði.Stéttarfélag nýbakaðra foreldra? Því fylgir mikill kostnaður að koma barni í heiminn og fjárhagur ungra foreldra er oft þröngur fyrir. Hvar gleymdust foreldrar í fæðingarorlofi í síðustu kjaraviðræðum? Hugsanlega þarf þessi hópur sérstakt stéttarfélag til að öðlast raunverulega rödd og ná eyrum stjórnvalda. Sérstaða þessarar kjarabaráttu er líka sú að undir eru ekki bara kjör eins hóps, heldur eru gríðarlegir hagsmunir ríkissjóðs til lengri tíma af því að fólk haldi áfram að eignast börn og geri það í meiri mæli, en ekki minni.Kerfið þarfnast gagngerra umbóta. Það er mun ósveigjanlegra en á hinum Norðurlöndunum og auðvelt að falla milli skips og bryggju. Við sálfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk leggjum mikla áherslu á tengslamyndun barna og foreldra og grunninn sem fyrstu tvö árin leggja að framtíðarvelferð barnsins. Það er þess vegna bagalegt að þegar foreldrar vilja verja sem mestum tíma með börnum sínum fylgi því stöðugar fjárhagsáhyggjur.Ég skora á Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, að ráðast í heildarendurskoðun þessara mála. Þar eru ekki aðeins undir hagsmunir okkar foreldra og barna, heldur þjóðarinnar allrar. Höfundur er sálfræðingur og foreldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fæðingarorlof Börn og uppeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar