Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Freyja Þórisdóttir skrifar 19. september 2026 19:32 Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, fundaði í dag, þann 19. september, með utanríkismálanefnd Alþingis og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands. X/Andrii Sybiha Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip.
Kemur þetta meðal annars fram á vegum Stjórnarráðsins og í færslu sem Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, birti á miðlinum X um fundinn sem hann átti ásamt utanríkismálanefnd Alþingir. Þar skrifaði hann að sönnun fyrir þeirri samstöðu sem bæði stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkar hafi sýnt í stuðningi sínum við Úkraínu sé stuðningsáætlun Alþingis fyrir Úkraínu, sem gildi til ársins 2028. Undirbúa sig fyrir veturinn Þá greindi hann einnig frá því að hann hefði þakkað fyrir „stöðugar aðgerðir Alþingis til að draga Rússland til ábyrgðar, með samþykkt ályktana, þátttöku á alþjóðavettvangi og stuðningi við störf íslenskra stjórnvalda.“ Sybiha þakkaði fyrir góðan fund ásamt utanríkismálanefnd Alþingis sem fram fór í dag, þann 19. september.X/Andrii Sybiha Sybiha skrifaði einnig í færslunni um það að hann hafi lýst fyrir þingmönnunum hvernig núverandi aðstæður séu í Úkraínu og að þau hafi rætt næstu skref enda sé unnið að því sleitulaust að undirbúa Úkraínu fyrir veturinn. „Ég þakkaði formanni nefndarinnar, Pawel Bartoszek, og öllum nefndarmönnum, sem og öllu þinginu og íslensku samfélagi, fyrir eindreginn stuðning við Úkraínu – stuðning sem sameinar alla. Við metum þessa samstöðu mikils, sem minnir okkur á að við erum ekki ein,“ stóð einnig í færslunni. Hugurinn hjá úkraínsku þjóðinni Á vef stjórnarráðsins var greint frá því sem fram fór á fundi Sybiha og Þorgerðar en þar segir að þau hafi rætt stöðu mála í Úkraínu í aðdraganda vetrar og áframhaldandi stuðning Íslands er lúti að varnartengdum stuðningi, efnahags- og mannúðaraðstoð, og þvingunaraðgerðum gagnvart Rússlandi. Einnig hafi verið rætt um brýna þörf Úkraínu fyrir auknar loftvarnir og stuðning í orkumálum. Þá var haft eftir Þorgerði að „hugur minn er sem fyrr hjá úkraínsku þjóðinni sem horfir fram á erfiðan vetur vegna gegndarlausra loftárása Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði sem meðal annars sjá fjölskyldum landsins fyrir hita, rafmagni og vatni“. Það hafi verið afar kærkomið að taka á móti Sybiha til að undirstrika enn á ný „órofa samstöðu Íslands með baráttu Úkraínu fyrir fullveldi sínu, frelsi og lýðræði og staðfastan stuðning okkar við varnarbaráttu þeirra gegn grimmilegu landvinningastríði Rússlands“.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Utanríkismál Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira