Innlent

Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna

Eiður Þór Árnason skrifar
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins.
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins. vísir/bjarni

Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Þar hafi hún tjáð honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Hann sagði sig úr flokknum í kjölfarið.

Þetta segir Guðmundur Ingi Kristinsson í samtali við RÚV um samskipti sín við Ingu Sæland. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans en það hafi verið samtal hennar við eiginkonu hans sem hafi orðið þess valdandi að hann ákvað að yfirgefa Flokk fólksins.

„Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem ráðherra,“ segir hann í frétt RÚV. Konan hans hafi neitað því að hleypa henni inn á sjúkrastofuna.

Þetta hafi verið á þriðja degi jóla og það mætti bíða með þetta þar til Guðmundur kæmi heim.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×