Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Kjartan Kjartansson og Birgir Olgeirsson skrifa 15. september 2026 14:00 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld séu á réttri leið. Vísir/Ívar Fannar Dómsmálaráðherra segir að fækkun erlendra ríkisborgara á Íslandi sýni að ríkisstjórnin sé að ná stjórn á innflytjendamálum eftir stefnuleysi fyrri stjórnvalda. Hún boðar frekari aðgerðir í útlendingamálum á nýju þingi.
Erlendum ríkisborgurum sem eru skráðir með búsetu á Íslandi fækkaði um 0,6 prósent, eða rúmlega fimm hundruð manns, frá 1. desember til 1. september samkvæmt tölum sem Þjóðskrá birti í dag. Þeir eru nú um fimmtungur íbúa landsins. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir tölurnar segja að stjórnvöld séu að ná tökum á málaflokknum eftir tíu ára tímabil þar sem landsmönnum fjölgaði um fimmtíu þúsund. „Mjög kraftmikil fólksfjölgun sem var afleiðing af stefnuleysi miklu frekar en að þetta væri birtingarmynd einhverrar stefnu,“ sagði ráðherrann við fréttamann Vísis eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Stjórnleysi í málaflokknum hefði haft afleiðingar á húsnæðismarkaði, inni í skólum landsins og í heilbrigðiskerfinu. „Stóra sagan er að við erum að ná stjórn á viðkvæmum málaflokki, innflytjendamálum og útlendingamálum,“ sagði Þorbjörg. Fyrirvari er í tölum Þjóðskrár um að átak hennar í að uppfæra lögheimilisskráningar geti haft áhrif á skráðan fjölda erlendra ríkisborgara og þar með breytingar milli tímabila. Endurskoða dvalarleyfi og ríkisborgararétt Á sama tíma sagði hún að fólksflutningar til landsins væru alger grunnstoð hagvaxtar. Stjórnvöld vildu fá fólk til landsins og að íslenskt samfélag væri ríkara vegna þess. „Atvinnulífið þarf á fólki að halda en við verðum að hafa yfirsýn og tilfinningu fyrir því hvað er að gerast. Ég lít svo á að þar séum við að ná miklum árangri núna,“ sagði dómsmálaráðherra. Í haust sagði Þorbjörg ætla að leggja fram frumvarp um heildarendurskoðun kafla útlendingalaga um dvalarleyfi. Ætlunin væri að smíða regluverk sem stæðist tímans tönn og afnema „áberandi íslenskar sérreglur“ líkt og gert hefði verið með reglur um alþjóðlega vernd á síðasta þingi. Þá vinni ráðuneyti hennar að því að rýna í reglur um ríkisborgararétt. „Ísland er eyja sem þarf á fólki að halda en við viljum hafa skoðun á því,“ sagði ráðherrann.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Innflytjendamál Alþingi Mannfjöldi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira