„Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2026 23:15 Theodór Ingi skoraði annað mark Fylkis í kvöld. Theodór Ingi Óskarsson, leikmaður Fylkis, var ánægður eftir æsispennandi sigur liðsins á HK í undanúrslitum umspilsins um sæti í Bestu deild karla. Fylkir vann einvígið 5-4 samanlagt eftir framlengdan leik í Árbænum. „
Mjög kaflaskiptur leikur. En maður hafði einhvern veginn alltaf á tilfinningunni, þegar leikurinn var farinn í framlengingu, að við værum að fara að taka þetta. Þetta er í þriðja sinn sem við gerum það á tímabilinu þannig að maður hafði alltaf trú á því,“ sagði Theodór eftir leik. Theodór kom Fylki yfir í fyrri hálfleik en HK sneri leiknum við í seinni hálfleik og komst í 2-1. Theodór fór af velli í síðari hálfleik og viðurkenndi að það reyndi á taugarnar að fylgjast með af bekknum. „Jú, maður hafði alveg áhyggjur þegar þeir voru komnir 2-1 yfir. Þá var búið að taka mig út af og það er enn verra að horfa á leikinn frá bekknum. En maður hafði alltaf trú á strákunum. Við börðumst áfram og tókum á því í framlengingunni.“ Mikill hiti færðist í leikinn í framlengingunni og fóru alls þrjú rauð spjöld á loft. „Ég viðurkenni það alveg að ég hefði viljað vera með í því. Það er alltaf gaman að sjá þetta frá bekknum eða stúkunni. Mér fannst þeir vera farnir að missa hausana undir lokin og það var jákvætt fyrir okkur. Við þurftum bara að halda kúlinu, sem við gerðum kannski ekki alveg, en gerðum það betur en þeir.“ Fylkir mætir Þrótti í úrslitaleik um sæti í Bestu deild karla á Laugardalsvelli. „Við erum bara ógeðslega spenntir. Ég er eiginlega ekki búinn að gera mér almennilega grein fyrir því að við séum að fara að spila á Laugardalsvelli. Þetta er draumur fyrir alla að fá að spila þar, á landsliðsvellinum, þannig að ég er bara virkilega spenntur.“
Fylkir Lengjudeild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira