Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. september 2026 12:36 Sendinefnd Bandaríkjanna er lent í Kænugarði og gengur nú til fundar við Vlodomir Selenskí Úkraínuforseta. Bandarísku erindrekarnir segjast vonast eftir því að samtalið verði jafn uppbyggilegt og fundur þeirra í gær með Rússlandsforseta.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með þeim Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasyni Bandaríkjaforseta, í þrjár klukkustundir í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að sendinefndin muni binda enda á innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Hvíta húsið hefur gefið út að næstu skref hafi verið rædd ítarlega á fundinum. Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Í upphafi fundarins á Rússlandsforseti að hafa sagt að hann bæri „fullt traust“ til milligöngu Bandaríkjanna. Pútín sagði fyrr í vikunni að sigur Rússlands væri innan seilingar og að varnir Úkraínu væru við það að bresta. Rússar hafa gert ítrekaðar árásir á Kænugarð undanfarna daga en þriggja daga hlé var gert á árásum á Kænugarð á meðan á heimsókn sendinefndarinnar stendur. Óskar Hallgrímsson, blaðamaður sem er búsettur í Kænugarði, segir viðvörunarbjöllur hafa ómað um borgina allan liðlangan daginn. „Fjöldi árása jókst en magnið í hverri árás dróst saman. Tæknilega er þetta ekki eins mikið af einstaka hlutum sem eru að fljúga í áttina að borginni. Þeir eru að senda þrjá til fimm dróna í einu samt, kannski tvisvar, þrisvar á klukkutíma sem er mjög pirrandi. Ég held að mest hafi verið tuttugu loftvarnarbjöllur en maður er ekkert að kippa sér upp við það.“ Rússneskur sjálfsprengidróni hæfði höfuðstöðvar úkraínsku leyniþjónustunnar á föstudag. Níu særðust í árásinni. „Af því að fólk bregst minna við og þar af leiðandi verða kannski loftvarnasveitir þreyttar. Ég veit ekki hver ástæðan var en þeir náðu að koma dróna hér í gegn að miðborginni. Þetta var við hliðina á heilögu Soffíukirkjunni. Þetta er bara hinum megin við götuna.“ Óskar Hallgrímsson hefur búið í Úkraínu í um fimm ár.vísir/elín margrét Hann segir lítið breytast þrátt fyrir hlé á árásum. „Venjulegt líf heldur bara áfram í Kænugarði, hvort sem bjöllurnar séu á milljón eða heyrist ekkert í þeim.“ Litlar vonir séu bundnar við að friður komist á. Óskar segir vægi Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu ekki það sama og í fyrri tíð. „Þeir eru á ómögulega slæmum stað. Það er hægt að segja það. Þetta Íransstríð setti þá í mjög erfiða stöðu og í rauninni lyfti plástrinum af sárinu sem þú vissir ekki að væri til staðar. Hugmyndin um að það sé einhver friður á leiðinni. Það er ekkert sem bendir til þess.“
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira