Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. september 2026 23:43 Dover-höfn í Kent í Englandi er ein fjölfarnasta farþegahöfn landsins. Getty/Oscar Rihll Miklar truflanir urðu á hafnarstarfsemi í bænum Dover í Kent-sýslu í Englandi í dag er svartklæddur hópur fólks hélt mótmæli að því er virðist gegn straumi flóttamanna til landsins.
Ýmsir breskir miðlar greina frá en í umfjöllun BBC segir að öll umferð hafi verið stöðvuð til og frá höfninni. Lögreglan í Kent hafi ekki enn tjáð hverjir hafi staðið fyrir mótmælunum en segir þau hafa verið „skyndimótmæli“. Hópurinn hafi samanstaðið af hundruðum grímuklæddra manna sem hafi hrópað „stöðvið bátana.“ Mótmælendur hafi lokað vegum sem liggja að höfninni í Dover og miklar umferðatafir hafi myndast. Dover er ein fjölfarnasta ferju- og farþegahöfn Bretlands. Mike Tapp, þingmaður Dover og Deal, sagði atvikið hafa valdið „hræðilegum truflunum“ fyrir íbúa og skrifaði á samfélagsmiðla: „Ég er kominn með nóg af því að fávitar komi til Dover.“ Chris Vinson sem situr í bæjarstjórn fyrir Íhaldsflokkinn, sagði að nokkur hundruð manns hefðu tekið þátt í mótmælunum og að þau virtust tengjast „ólöglegum fólksflutningum“. Mótmæli gegn innflytjendum eru algeng í Dover en flótta- og farandfólk sem sigli yfir Ermasundið til Bretlandseyja komi oft í land þar, segir í umfjöllun BBC. Hins vegar séu þau yfirleitt auglýst fyrir fram á opinberum vettvangi. Mótmælin í dag hafi verið í stærra lagi.
Bretland England Flóttamenn Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira