Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Eiður Þór Árnason skrifar 3. september 2026 16:35 Syrgjendur flytja lík ungmennanna á meðan útför þeirra fór fram. Ap/Leo Correa Tvenn palestínsk ungmenni voru drepin af ísraelskum landnemum og hermönnum í árás á þorp þeirra á hernumda Vesturbakkanum í gær. Þetta segja ráðamenn á svæðinu.
BBC hefur eftir þorpsráðinu í al-Mughayyir að hinn nítján ára Omar al-Nassan og sextán ára Khalil Abu Alia hafi verið drepnir þegar þeir reyndu að koma í veg fyrir að ísraelskir landnemar stælu sauðfé. Í kjölfarið hafi átök brotist út. Ísraelsher lýsti því yfir að hersveitir hefðu farið inn í þorpið til að tryggja öryggi ísraelsks borgara og lögreglu sem voru að reyna að endurheimta búfé. Herinn sagði að hersveitirnar hefðu skotið á og hæft þá sem þeir kölluðu „helstu hvatamenn“ að „ofbeldisfullum óeirðum“, þar sem Palestínumenn gerðust sekir um að kasta grjóti í hermenn. Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu en dauðsföllin eiga sér stað í skugga aukningar á ofbeldi landnema á Vesturbakkanum. Sameinuðu þjóðirnar hafa skráð yfir þrjár árásir á dag að meðaltali það sem af er ári. Palestínumenn syrgja hinn nítján ára Omar Naasan í þorpinu al-Mughayyir.Ap/Leo Correa Minnst 81 drepinn frá áramótum Þorpið al-Mughayyir, nærri borginni Ramallah, hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum landnema. Skilaboð í WhatsApp-hópum þeirra gefa til kynna að landnemar vonist til að íbúar þorpsins neyðist til að flytja af svæðinu, að sögn BBC. Minnst 81 Palestínumaður hefur verið drepinn af ísraelskum hersveitum eða landnemum á Vesturbakkanum frá áramótum, samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Að minnsta kosti 23 þessara dauðsfalla hafa átt sér stað í tengslum við árásir landnema. Á sama tímabili hafa þrír Ísraelar, ýmist almennir borgarar eða meðlimir öryggissveita, verið drepnir af Palestínumönnum á Vesturbakkanum, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Ísraelsher hefur sætt vaxandi gagnrýni fyrir að taka ýmist virkan þátt í árásum landnema á Palestínumenn, standa hjá eða láta hjá líða að sækja þá sem bera ábyrgð til saka. Handtóku nítján ára landnema Í dag tilkynnti ísraelska lögreglan að nítján ára landnemi hefði verið handtekinn, grunaður um þátttöku í árás á palestínska þorpið Qusra á laugardag. Þetta er fyrsta handtakan í tengslum við árásir á Quasra sem hafa staðið yfir í fleiri vikur. Tugir grímuklæddra landnema eru sagðir hafa ráðist inn í þorpið, umkringt hús þar sem Palestínumenn voru fastir inni og kastað grjóti. Ísraelskir hermenn sem sendir voru á vettvang eru sagðir hafa handtekið Palestínumennina sem voru innilokaðir í húsum sínum en ekki landnemana og leyft þeim síðarnefndu að yfirgefa svæðið. Ísraelsher sagði að hermenn hefðu fjarlægt „óeirðaseggi“ og verndað íbúa. Ísrael hefur byggt um 160 landnemabyggðir síðan þeir hernámu Vesturbakkann og Austur-Jerúsalem árið 1967. Þar búa í dag 700 þúsund gyðingar, að því er fram kemur í frétt BBC, en talið er að um 3,3 milljónir Palestínumanna búi á meðal þeirra. Palestínumenn vilja að landsvæðið auk Gasa verði hluti af framtíðarríki sínu og eru landnemabyggðir Ísraela ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum. Rifið þorp í gær Í gær rifu ísraelskar hersveitir palestínska þorpið Khirbet al-Tabban á Masafer Yatta-svæðinu. Ísraelsku mannréttindasamtökin B'Tselem sögðu að 70 íbúar þorpsins, þar af 28 börn, hefðu ekki fengið neina viðvörun eða tækifæri til að fjarlægja eigur sínar. BBC segir að B'Tselem lýsi niðurrifinu sem því umfangsmesta í Masafer Yatta síðan í maí 2025. Samtökin segja að Khirbet al-Tabban sé 66. palestínska samfélagið sem ísraelsk yfirvöld hafa hrakið á brott frá því að Gasa-stríðið hófst í október 2023. Lýsa samtökin aðgerðunum sem hluta af „þjóðernishreinsun“ sem fram fari á Vesturbakkanum.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira