Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2026 23:00 Trump segir að fleiri Repúblikanar ættu að tala um það sem hann hefur áorkað í embætti. Álíka árangur hafi aldrei sést áður. AP/Alex Brandon Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvatti Repúblikana í erfiðri stöðu fyrir þingkosningarnar í nóvember til að byggja kosningabaráttuna á afrekum hans í embætti. Það er þrátt fyrir mjög svo litlar vinsældir forsetans, en hann hefur einnig heitið því að ferðast víðsvegar um Bandaríkin og berjast fyrir frambjóðendur í um 35 kjördæmum sem gætu ráðið úrslitum hvað varðar stjórn fulltrúadeildarinnar næstu tvö ár.
Forsetinn sagðist í gær sannfærður um að árangur hans í Hvíta húsinu þessu sinni skipti sköpum og fleiri þyrftu að tala um hann. „Það eina sem þú þarft að gera er að tala um það og þú munt vinna. Þú munt vinna stórt,“ sagði Trump. Trump tells swing district Republicans that they should campaign on all of the accomplishments during the Trump administration and they’ll win big pic.twitter.com/6258YbFMGH— Acyn (@Acyn) September 2, 2026 Þetta sagði Trump á samkomu þingmanna Repúblikanaflokksins í gær, miðvikudag. Hann sagði einnig að hann ætlaði að verja síðustu þrjátíu dögunum eða meira fyrir kosningar í að ferðast til tiltekinna mikilvægra kjördæma og styðja Repúblikana þar. Á mánudaginn sagði Trump að sögulega kæmu flokkar forseta yfirleitt illa út úr þingkosningum sem haldnar eru á miðju kjörtímabili forseta. Repúblikanar ætluðu sér að breyta því að þessu sinni. „Hvort sem þú ert góður forseti eða frábær forseti, þá tapar þú miðkjörtímabilskosningum,“ sagði Trump samkvæmt AP fréttaveitunni. „Við ætlum að snúa þessu við, því það er engin ástæða fyrir þessu.“ Fjarlægja sig frá forsetanum Donald Trump tilkynnti nýlega að halda ætti „sögulegan“ viðburð fyrir Repúblikana nokkrum vikum fyrir kosningarnar. Þetta á að vera eins konar landsfundur Repúblikanaflokksins en margir þingmenn og frambjóðendur flokksins sem þykja í erfiðri stöðu fyrir kosningarnar hafa ákveðið að mæta ekki. Sjá einnig: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Blaðamenn New York Times ræddu við nokkra þingmenn sem sögðust ekki ætla að mæta. Margir sögðust frekar vilja verja tímanum með kjósendum. Þar að auki reyndu nokkrir að komast hjá því að svara spurningunni. Talskona Repúblikanaflokksins sagði rangt að þingmenn veigruðu sér við því að mæta en neitaði að útvega lista yfir þá sem ætluðu að mæta. Vinsældir Trumps eru sögulega litlar á landsvísu, miðað við kannanir vestanhafs, og má rekja það hvað helst til verðlags, tolla og stríðsins gegn Íran, sem er mjög óvinsælt meðal þjóðarinnar. Þá hefur það reitt marga Repúblikana til reiði að Trump situr á um fjögur hundruð milljón dala pólitískum aðgerðasjóði sem hann hefur ekkert beitt til að aðstoða Repúblikanaflokkinn. Fjögur hundruð milljónir dala samsvara tæpum fimmtíu milljörðum króna. Elon Musk, auðugasti maður heims, er byrjaður að verja fúlgum fjár til að aðstoða Repúblikana en pólitískur aðgerðasjóður hans, sem heitir America PAC, er talinn innihalda um hundrað milljónir dala, eða rúma tólf milljarða króna.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira