Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2026 09:51 Önnur tilraun Trumps til að setja tálma á það að börn sem fæðast í Bandaríkjunum fái ríkisborgararétt hefur verið stöðvuð af alríkisdómara. Ekki liggur fyrir hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar Bandaríkjanna, sem stöðvaði síðustu tilraun forsetans. AP/Alex Brandon Alríkisdómari felldi í gær úr gildi forsetatilskipun Donalds Trump sem ætlað var að binda enda á það að langflest börn sem fæðast í Bandaríkjunum verða sjálfkrafa bandarískir ríkisborgarar. Skipunin var önnur tilraun forsetans til að breyta lögunum sem sett voru árið 1868 með viðbótarákvæði við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Fyrr á árinu gaf Trump út aðra tilskipun um að börn fólks sem væri einungis tímabundið í Bandaríkjunum eða dveldi þar með ólöglegum hætti yrðu ekki sjálfkrafa ríkisborgarar. Hæstiréttur felldi þá tilskipun úr gildi í sumar. Í úrskurði sínum sagði dómarinn málið vera skýrt, þar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði fjallað um það áður. Börn sem fæddust í Bandaríkjunum væru bandarískir ríkisborgarar, í langflestum tilfellum. Þennan úrskurð væri ekki hægt að fella úr gildi með forsetatilskipun. Vildi víkka undanþágur Hæstiréttur hefur áður sett þær takmarkanir á að börn erlendra erindreka í Bandaríkjunum verði ekki sjálfkrafa ríkisborgarar. Það sama á við börn erlendra aðila sem hafa hernumið bandarískt landsvæði. Börn sem fæðast á bandarískum Samóaeyjum eru heldur ekki sjálfkrafa ríkisborgarar. Í nýjustu tilraun Trumps til að setja takmarkanir á það hvernig börn sem fæðast í Bandaríkjunum verða ríkisborgarar reyndi forsetinn að útvíkka áðurnefndar takmarkanir. Forsetatilskipunin snerist meðal annars um það að börn sem ferðuðust sérstaklega til Bandaríkjanna til að eignast þar barn, svo það yrði ríkisborgari, yrðu undanskilin. Þá átti einnig að undanskilja börn allra sem vinna í sendiráðum annarra ríkja og börn erlendra aðila sem starfa hjá Sameinuðu þjóðunum. Þá átti tilskipunin einnig að undanskilja börn fólks sem tilheyra samtökum sem yfirvöld í Bandaríkjunum hafa skilgreint sem hryðjuverkasamtök. Voru þá nefnd samtök eins og Antifa og Tren de Aragua. Óttast óreiðu Það voru ýmsar fjölskyldur og samtök sem höfðuðu mál gegn ríkisstjórn Trumps til að stöðva tilskipunina. Þau héldu því fram að framkvæmdarvaldið í Bandaríkjunum hefði áður verið mjög óskýrt um skilgreiningar á áður tilteknum hópum og ákvarðanir um slíkt hefðu verið teknar á veikum grunni. Þá óttuðust margir að börnum þeirra yrði neitað um ríkisborgararétt vegna þess að fjarlægur ættingi væri meðlimur í glæpagengi í heimalandi þeirra, þótt foreldrar barnanna væru það ekki. Lögmaður ríkisstjórnarinnar sagði að yfirvöld myndu ganga úr skugga um að réttum aðferðum yrði beitt og það byggði á viðmiðum sem hefðu ekki verið samin enn. Þeim rökum hafnaði dómarinn.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira