Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða Kjartan Kjartansson skrifar 3. september 2026 09:43 Ísskúlptúr af rússneska rannsóknarskipinu Prófessor Moltsjanov í Moskvu árið 2023. Sjálf fyrirmyndin er nú kyrrsett á Svalbarða vegna skulda Rússa við úkraínskt gasfyrirtæki. Vísir/EPA Rússnesk stjórnvöld saka Norðmenn um „sjóræningjastarfsemi“ eftir að rússneskt skip var kyrrsett á Svalbarða. Skipið var kyrrsett að kröfu úkraínsks orkufyrirtækis sem á inni skaðabætur hjá stjórnvöldum í Kreml.
Prófessor Moltsjanov var kyrrsettur í Barentsburg á Svalbarða í gær á grundvelli dómsúrskurðar, að sögn norska ríkisútvarpsins. Skipið hefur rannsakað landgrunnið í kringum Svalbarða í leit að steinefnum undanfarin ár. Það er sagt tengjast Shirshov-hafrannsóknastofnuninni í Rússlandi sem sætir bæði bandarískum og úkraínskum refsiaðgerðum. Úkraínska ríkisorkufyrirtækið Naftogaz fór fram á kyrrsetninguna. Hún tengist máli fyrirtækisins gegn rússneskum stjórnvöldum sem tóku upp eignir þess þegar þau innlimuðu Krímskaga árið 2014. Alþjóðagerðardómurinn í Haag skipaði Rússum að greiða Naftogaz rúma 4,2 milljarða dollara vegna þess árið 2023. Rússar hafa brugðist ókvæða við kyrrsetningunni. Aleksej Tsjekunkov, norðurslóðaráðherra Rússlands, segir aðgerðir Norðmanna dæmi um „lögfræðilega gereyðingarstefnu og lögleysi vestrænna ríkja“. Utanríkisráðuneytið segir Norðmenn stunda „sjóræningastarfsemi“. Þessu hafna norsk yfirvöld. Þau eigi ekki aðild að málinu heldur sé það á milli rússneskra stjórnvalda og Naftogaz. Embættismaður hjá norska dómsmálaráðuneytinu segir að rússnesk stjórnvöld geti reynt að fá kyrrsetningunni hnekkt fyrir dómi. Telur skipið hluta af fjölþáttaógn Rússa Norska ríkisútvarpið hefur eftir Kari Aga Myklebost, prófessori í rússneskri sögu við Norðurslóðaháskólann í Tromsö, að kyrrsetta skipið hafi verið notað í blönduðum hernaði Rússa og í áróðursskyni. Skipið hafi til að mynda ferjað biskup úr rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni til Svalbarða sem hefur notað tækifærið til þess að flagga sovéska fánanum. Eins hafi skipið flutt rússneska sjóliða til Svalbarða til þess að fagna lokum síðari heimsstyrjaldarinnar 9. maí. Myklebost segir að rússnesk stjórnvöld beiti fyrir sig borgaralegum skipum við njósnir og í hernaðarlegum tilgangi.
Rússland Noregur Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Norðurslóðir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira