Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Agnar Már Másson skrifar 2. september 2026 22:57 Trump tjáði sig um málið á blaðamannafundi. Samsett Mynd „Ég er sáttur með það,“ svaraði Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út í þær fréttir að Harry Bretaprins og Meghan, hertogaynja af Sussex, væru flutt frá Bandaríkjunum aftur til Bretlands. „
Ég var enginn aðdáandi,“ bætti forsetinn við. Greint var frá því í vikunni að fjölskyldan hefði flutt ásamt börnum sínum aftur til Bretlands, sex árum eftir að þau hættu opinberum störfum fyrir konungsfjölskylduna og fluttu til Kaliforníu. „Ég og drottningin [Elísabet heitin] áttum ávallt gott samband, mjög gott. Ég fékk að kynnast henni vel. Ég á gott samband við Karl konung,“ hélt Trump áfram. Harry og Meghan kynntust árið 2016 og gengu í hjónaband í Windsor-kastala í maí 2018. Harry hafði lengi gagnrýnt umfjöllun breskra fjölmiðla um Meghan og sagt kynþáttalegan undirtón hafa verið í sumum fréttum. Í janúar 2020 tilkynntu hjónin að þau hygðust draga sig í hlé frá störfum hátt settra meðlima konungsfjölskyldunnar, afla sér eigin tekna og skipta tíma sínum milli Bretlands og Norður-Ameríku. Buckinghamhöll sagði þá að viðræður um stöðu þeirra væru skammt á veg komnar og að leysa þyrfti flókin álitaefni. Áformin um heimkomuna urðu opinber í síðustu viku. Reuters sagði þá að samband Harry og Karls hefði batnað undanfarna mánuði en samband Harry við Vilhjálm, bróður sinn, væri enn slæmt. Á blaðamannafundinum lýsti Trump Karli konungi sem „frábærum gaur“ en bætti við að Harry og Meghan hefðu sýnt konungsfjölskyldunni mikla vanvirðingu.
Donald Trump Bretland Harry og Meghan Karl III Bretakonungur Elísabet II Bretadrottning Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira