Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. september 2026 08:06 Vladimír Pútín á blaðamannafundinum í Kyrgistan í gær. EPA/VYACHESLAV PROKOFYEV Vladimír Pútín Rússlandsforseti fullyrðir að Rússland sé að vinna stríðið í Úkraínu. Rússneskar hersveitir sækji sífellt hraðar fram í stríðinu sem staðið hefur yfir síðan Rússar gerðu allsherjarinnrás í Úkraínu árið 2022.
Þetta fullyrti hann á blaðamannafundi í gærkvöldi, að því er fram kemur í umfjöllun Reuters. Þar sagðist hann ekki vera í vafa yfir því að Úkraínumenn myndu tapa stríðinu þó hann væri ekki tilbúinn til þess að fullyrða nokkuð um hvenær það myndi gerast. Á blaðamannafundinum fullyrti Pútín að rússneskar hersveitir væru ekki aðeins að sækja fram, heldur gerðu það með auknum hraða. Að hans sögn náðu Rússar yfirráðum yfir 270 ferkílómetrum og fimmtán bæjum í Donetsk-héraði í austurhluta Úkraínu í ágúst. Pútín fullyrti ennfremur að tveir stórir hópar úkraínskra hermanna hefðu verið umkringdir. Annar þeirra á að samanstanda af 4500 til 4800 hermönnum og hinn af allt að tvö þúsund hermönnum, að því er Reuters greinir frá. Miðillinn tekur fram að ekki hafi reynst unnt að sannreyna staðhæfingar rússneska forsetans. Að sögn Pútíns halda rússneskar hersveitir áfram framsókn sinni í átt að borgunum Slovjansk og Kramatorsk. Hann sagði einnig að Rússar væru að undirbúa umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu. Forsetinn tiltók þó að Rússar væru reiðubúnir til samninga um frið en að þær yrðu að leiða til einhvers. Þá gagnrýndi hann orð Volodomír Selenskí Úkraínuforseta um að flugfélög sem enn nýttu sér rússneska lofthelgi ættu að gæta að sér. Sagði hann að Rússar gengju ekki til samninga við „hryðjuverkamenn.“
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Tengdar fréttir Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins. 1. september 2026 10:51 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins. 1. september 2026 10:51