Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2026 16:17 Johann Wadephul, utanríkisráðherra, og Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir beindu spjótum sínum að Rússum vegna sjálfsprengidróna sem fundust á flugvellinum í Lepzig. EPA/FILIP SINGER Yfirvöld í Þýskalandi hafa sakað Rússa um að bera ábyrgð á sjálfsprengidrónum sem Leipzig/Halle flugvellinum í síðasta mánuði. Um fjölþáttaárás sé að ræða.
Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði frá þessari niðurstöðu yfirvalda á blaðamannafundi í Berlín í dag. Hann sagði árásartilraunina í Leipzig vera eingöngu einn hlekk í langri keðju fjölþáttaógna Rússa í Evrópu að undanförnu. Þann 4. ágúst sá starfsmaður á umræddum flugvelli dróna nærri úkraínskum fraktflugvélum en flugvöllurinn hefur lengi verið notaður til hergagnaflutninga til Úkraínu. Sprengibúnaður drónans, sem bar öflugt plastsprengiefni, var bilaður og sprakk hann því ekki. Sjá einnig: Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Talið var að flugvél í eigu DHL hefði einnig verið flogið á dróna um svipað leyti. Þá er bent á í frétt DW að í síðustu viku sögðu þýskir fjölmiðlar frá því að þriðji dróninn, sem bar einnig sprengiefni, hefði fundist á flugvellinum. Rússar hafa verið bendlaðir við fjölmargar fjölþáttaógnir í Evrópu á undanförnum árum og er útlit fyrir að tíðni þeirra hafi aukist á undanförnum mánuðum. Sjá einnig: Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Kaja Kallas, sem stýrir utanríkismálum hjá Evrópusambandinu, sagði fyrr í dag að ljóst væri að Rússar bæru ábyrgð á drónunum. Hún sagði einnig að ögrunum Rússa færi fjölgandi og finna þyrfti leiðir hvernig fæla mætti yfirvöld í Moskvu frá því að auka spennuna enn frekar. Loka ræðismannsskrifstofu Rússa í Bonn Á blaðamannafundinum í dag sögðu ráðherrar að rannsókn lögreglu, mynstur fjölþáttaógna og leynilegar upplýsingar sýndu með skýrum hætti að yfirvöld í Rússlandi bæru ábyrgð á drónunum og árásartilrauninni. Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði í dag að ræðismannsskrifstofu Rússa í Bonn yrði lokað þann 18. september og að samningi sem gerir Rússum kleift að reka menningarmiðstöð í Berlín yrði rift. Sjá einnig: Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Þá stendur einnig til að kalla sendiherra Rússlands í Þýskalandi á teppið og leggja fram formleg mótmæli, samkvæmt frétt Welt, og beita rússneska aðila refsiaðgerðum. „Skilaboð okkar til ráðamanna Rússlands eru skýr,“ sagði Wadephul. „Við munum ekki leyfa Rússlandi að sundra eða ógna samheldni samfélags okkar.“ Dobrindt sagði að öryggisstofnanir Þýskalands hefðu um nokkuð skeið fylgst með fjölgun fjölþáttaógna í Þýskalandi og nágrannaríkjum. Þessar ógnir beindust að mikilvægum innviðum, hergagnaframleiðslu og stuðningi við Úkraínumenn. Hann sagði þessar ógnir ítrekað fela í sér njósnir, skemmdarverk, upplýsingaóreiðu og undirbúning árása.
Þýskaland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Fjölþáttaógnir Hernaður Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira